Íslensku boxi gefið rothögg
by Sigurður Hólm Gunnarsson | 15. 05. 2000
Margir íslenskir aðdáendur hnefaleika urðu fyrir vonbrigðum á laugardaginn þegar tillaga þess efnis að ólympískir hnefaleikar yrðu leyfðir hér á landi var felld. Nú kunna margir frjálslyndir lesendur Skoðunar að telja mig íhaldssaman þar sem að ég fagna þessari niðurstöðu… held ég. Nú er ég þeirrar skoðunar að ríkið eigi ekki að skipta sér af […]
Skattar forseta
by Brynjólfur Þór Guðmundsson | 12. 05. 2000
Frumvarp það sem fjórir þingmenn lögðu fram í gær þess efnis að forseti skyldi greiða skatta eins og annað fólk er löngu tímabært og fögnunarefni að það er komið fram.
Um eðli og áhrif refsinga
by Bragi Freyr Gunnarsson | 10. 05. 2000
Franskur sagnfræðingur að nafni Michel Foucault fjallaði um eðli refsinga og þróun þeirra í gegnum tíðina í bók sinni “Discipline and punish: The birth of prison” sem gefin var út árið 1977. Á fyrstu síðum bókarinnar lýsir hann á berorðan hátt opinberri...
Hræðslan við Evrópu
by Brynjólfur Þór Guðmundsson | 08. 05. 2000
Það veldur Evrópusinna eins og mér vonbrigðum að Samfylkingin skyldi ekki hafa kjark til að lýsa því yfir á stofnþingi sínu að sækja beri um aðild að Evrópusambandinu.
Hlutleysi þekkingar og siðferði í vísindum
by Sigurður Hólm Gunnarsson | 05. 05. 2000
Reglulega brýst fram hálfgerð dómsdagsumræða um að allt sé að fara til fjandans. Algengt er að slík umræða fjalli um það hvað tækniframfarir og vísindauppgötvanir geta reynst hættulegar og geti jafnvel tortímt mannkyninu. Dæmi um slíka dómsdagsumræðu er ágætis grein...
Paradísarheimt
by Kolbeinn Hólmar Stefánsson | 03. 05. 2000
Noregur er, ef ekki áhugavert land, að minnsta kosti athyglisvert land og það fyrir margar sakir. Við fyrstu kynni virðist Noregur vera alveg eins og Ísland, nema bara með fleiri hólum og trjám. Meðalhitinn yfir árið er t.d. nokkurn veginn sá sami og heima á skeri. Það er ekki fyrr en eftir lengri dvöl að […]
Hugtök og heiti
by Kolbeinn Hólmar Stefánsson | 02. 05. 2000
Eftir ábendingu góðra manna vil ég koma því á framfæri að í grein minni um Elían Gonzales, sem birt var fyrir viku hér á Skoðun, var hugtakið róttæklingur ekki notað sem vísun í Múrinn, það ágæta málfundarfélag og vefútgáfu. Með þessu hugtaki átti ég einungis við...
Öreigar allra landa eflist
by Brynjólfur Þór Guðmundsson | 01. 05. 2000
Svo lengi sem ég man eftir mér hefur 1. maí alltaf verið sérstakur dagur. Ekki það að ég hafi verið duglegur við að fara í kröfugöngur en það vaknar alltaf smá von í brjósti mér þegar ég sé fólk ganga fylktu liði og krefjast bættra kjara, aukins réttlætis og félagslegrar velferðar. Þá sé ég að […]


