Þessi svokallaða þrískipting
by Brynjólfur Þór Guðmundsson | 05. 02. 2001
Þrátt fyrir að Íslandi eigi að heita stjórnað í anda þrískipts stjórnvalds hefur ekki farið svo ýkja mikið fyrir því. Ef til vill ekki framan af og sérstaklega ekki í seinni tíð. Þannig hefur framkvæmdavaldið stjórnað löggjafarvaldinu að miklu leiti eins og dæmin sanna. Því er spurning hvort ekki væri rétt að löggjafarvald og framkvæmdavald […]
Í allri sinni smæð
by Kolbeinn Hólmar Stefánsson | 01. 02. 2001
Þar sem ég sat á sameiginlegum fundi Ungra jafnaðarmanna og Ungra framsóknarmanna rann það upp fyrir mér að sameining móðurflokka þessara tveggja hreyfinga væri hin mesta nauðsyn. Saman hefðum við meira fylgi en Vinstrihreyfingin – grænt framboð, þó forskotið væri vissulega naumt.
Ábyrgðarleysi
by Brynjólfur Þór Guðmundsson | 25. 01. 2001
Víða erlendis segja ráðherrar af sér fyrir að ljúga að þinginu. Víða erlendis segja ráðherrar af sér fyrir að þiggja lán af samstarfsmönnum sínum og greina ekki frá þeim. Víða erlendis segja ráðherrar af sér verði þeir fyrir nógu mikilli gagnrýni fyrir að gegna störfum sínum illa. Hérlendis virðast ráðherrar hins vegar geta gert nokkurn […]
Múrarar og Frelsarar sameinast
by Brynjólfur Þór Guðmundsson | 22. 01. 2001
Það er merkilegt hvað frelsarar og múrarar heimsins geta sameinast í mörgum málum þrátt fyrir að lýsa hvorum öðrum sem óalandi og óferjandi aðilum sem lítið vit er í. Þannig eru þeir sammála um að Evrópusambandið sé hin versta óheillakráka sem völ er á og ekki er að...
Barist fyrir ,,mannréttindum“ – 2. lota
by Sigurður Hólm Gunnarsson | 20. 01. 2001
Nú er tæpt ár síðan tillaga nokkurra þingmanna um lögleiðingu ólympískra hnefaleika var felld með einu atkvæði. Nú á að reyna aftur og virðast stuðningsmenn ólympískra hnefaleika hafa skammlaust tekið upp sömu stefnu og bandarískir demókratar tóku í síðustu forsetakosningum. Þeir vilja láta kjósa og telja aftur og aftur þar til ,,rétt“ niðurstaða fæst í […]
Þröngur kostur í búi
by Kolbeinn Hólmar Stefánsson | 18. 01. 2001
Eftir langt tímabil óendanlegra valmöguleika er loks farið að þrengja að okkur vesturlandabúum. Sykur er eitur, salmonella í káli, kamfíló í kjúklingi og riða í kjöti. Það eina sem við eigum eftir til að éta er fiskurinn sem syndir í klóakinu sem við dælum í höfin, innan um sokkna kjarnorkukafbáta, uppétinn af hringormi og öðrum […]
Kúariðufárið kemur til Íslands
by Brynjólfur Þór Guðmundsson | 15. 01. 2001
Það hefur verið áhugavert að fylgjast með málflutningi ýmissa stjórnmálamanna sem hafa tjáð sig um innflutning Nóatúns á írskum nautalundum um helgina. Einhverra hluta vegna fannst mér að allir þeir sem ég heyrði í væru helst þeirrar skoðunar að banna ætti alveg innflutning erlendra landbúnaðarafurða.
Þetta sögðu þau þá
by Brynjólfur Þór Guðmundsson | 12. 01. 2001
Ekki er svo langt síðan þeir sem börðust fyrir því að Ísland yrði aðili að samningnum um evrópska efnahagssvæðið voru úthúðaðir sem föðurlandssvikarar og ljótir hrútar skýrðir eftir þeim. EES-samningnum var fundið allt til foráttu þó svo margir þeir sem þá voru á móti telji hann nú hið besta mál. Það er því ekki úr […]

