Hefur Þingvallanefnd brugðist?
by Brynjólfur Þór Guðmundsson | 14. 08. 2000
Íslenska þjóðarhjartað virðist hafa misst úr nokkur slög þegar það spurðist út í síðustu viku að eigandi Hótel Valhallar hefur í huga að selja eign sína erlendum aðila, hvort sem er til hótelreksturs eða sem sumarbústaðar. Meðlimir Þingvallanefndar hafa lýst yfir andstöðu sinni og ýmsir aðilar risið upp og kvartað undan þjóðvillu. Eftir standa þó […]
Að upphefja sig á kostnað annarra
by Gestapennar | 11. 08. 2000
Heimurinn er alltaf að minnka og í samfélagi þjóðanna verður krafan um gagnkvæma virðingu æ kraftmeiri. Innan þessa samfélags þurfa að rúmast ólíkar lífsskoðanir. Það skýtur því skökku við þegar maður eins og forsætisráðherra Íslands gerir opinberlega lítið úr þeim sem ekki deila trúarafstöðu hans. Hafa Íslendingar kannski ekki áhuga á alþjóðlegu samstarfi.
Birtingarmyndir lýðræðisins 4
by Kolbeinn Hólmar Stefánsson | 09. 08. 2000
Þingræðið: Aðstöðuleysi þingmanna En kannski er ég að dæma þingheim of hart. Kannski er hinn almenni þingmaður ekki vanhæfur. Kannski er það bara aðstöðuleysi sem háir honum. Góður þingmaður á að vera vel að sér í öllum þeim málum sem hann hefur bein afskipti af, auk þess sem hann verður að hafa næga þekkingu á […]
Alls konar nöldur
by Brynjólfur Þór Guðmundsson | 07. 08. 2000
Ég ætlaði að skrifa lærða grein um sögufölsun í kvikmyndum og almennri söguskoðun en komst að því þegar ég settist við skriftir að ég hafði ekki þolinmæði til þess. Þess vegna vona ég að lesendur mínir fyrirgefi mér þó ég nöldri yfir hinu og þessu þó svo það verði lítið samhengi í skrifunum.
Ofurstinn allur
by Brynjólfur Þór Guðmundsson | 07. 08. 2000
Eftirminnilegasta mynd sem ég hef séð er Bridge on the River Kwai. Sérstaklega fyrir túlkun Alec Guinness á Nicholson ofursta. Myndina sá ég fyrst sem smá polli, ef til vill sjö, átta ára. Alla tíð síðan man ég eftir Guinness fara fyrir sínum mönnum blístrandi inn í fangabúðirnar, rísa upp úr pyntingarklefa sínum, fölur og […]
Opið bréf til Félags íslenskra þjóðernissinna
by Sigurður Hólm Gunnarsson | 04. 08. 2000
Formáli Til er hópur sem kallar sig Félag íslenskra þjóðernissinna og heldur hann meðal annars úti heimasíðu þar sem stefnumál félagsins eru kynnt. Tilgangur félagsins er meðal annars að vernda "kynstofn íslensku þjóðarinnar" og "hindra frekara landnám útlendinga af...
Eitur og ekki eitur
by Bragi Freyr Gunnarsson | 02. 08. 2000
Ég hef oft velt því fyrir mér hvað það er sem ræður því að sum vímuefni eru leyfileg, og önnur ekki. Þegar fólk er spurt eru svörin oft á þá leið að hin bönnuðu vímuefni séu einfaldlega skaðlegri en þau sem leyfilegt er að neyta. Þessi svör eru mér ófullnægjandi þar...
Birtingarmyndir lýðræðisins 3
by Kolbeinn Hólmar Stefánsson | 02. 08. 2000
Alþingi: Hæfni þingmanna Ég verð að viðurkenna að þessar vangaveltur mínar um lýðræðið eru að einhverju leiti sprottnar upp úr þeirri umræðu sem varð í kjölfar þess að Pétur Blöndal lýsti yfir óánægju sinni með valdaleysi Alþingis. Í ljósi þessa, og þess að Alþingi er vettvangur lýðræðisins í landsmálunum, ætla ég að koma lítillega inn […]


