Krossferðin gegn kerfinu

Ólíkt Björgvini Guðmundssyni hef ég ekki enn skilað inn skattskýrslunni minni. Þrátt fyrir það hafa hvorki ég né aðrir séð neina ástæðu til að upphefja mig í íslenskum fjölmiðlum. Ástæðan fyrir því er líklega sú að ég mun skila minni samviksusamlega á netinu fyrir þann 10. apríl, en það er síðasti skiladagur fyrir okkur sem […]

Alþýðuflokkurinn og ESB

Það er til lífseig saga um að ástæðan fyrir slöku gengi Alþýðuflokksins í Alþingiskosningunum 1995 sé áherslu flokksins á aðildarumsókn að Evrópusambandinu að kenna. Mér finnst það ótrúleg ástæða sérstaklega þegar tekið er tillit til þess að skömmu áður en flokkurinn birti stefnu sína mældist fylgi hans í skoðanakönnunum í svipuðu magni og áfengisinnihald pilsners.

Skóli og trúarbrögð

Það má færa rök fyrir því að án kirkjunnar hefði menntun Íslendinga orðið mun minni og orðið almenn síðar en raunin var. Það breytir því þó ekki að trúarbragðakennsla í grunnskólum er tímaskekkja. Hafi hún þá einhvern tíma átt við sem ég efast reyndar um. Eru...

Sáttahönd til frjálshyggjunnar

Ég hef oft verið ósanngjarn í skrifum mínum um frjálshyggjuna hérna á síðum Skoðunar. Staðreyndin er sú að jafnaðarstefnan og frjálshyggjan eru fullkomlega ósambærileg fyrirbæri enda mjög ólík í eðli sínu. Þessar stefnur eru þó ekki ósamhæfanlegar eins og breskir...

Borgaralegar fermingar

Í gær fermdust 49 börn borgaralegri fermingu. Þetta er í tólfta skipti sem Siðmennt stendur fyrir slíkri fermingu þar sem trúlausum ungmennum, og trúuðum ungmennum sem vilja af eigin ástæðum ekki fermast kirkjulega, gefst kostur á að fermast á eigin forsendum. Auknar...

Frjálslyndir jafnaðarmenn

Fyrir viku fékk ég útrás fyrir lýðræðisgleði mína með því að ráðast fremur harkalega að stofnfundi Ungra jafnaðarmanna fyrir ólýðræðislegt fyrirkomulag. Þetta er ekki afsökunarbeiðni. Ég vil þó nota tækifærið til að lýsa aðdáun minni á þeirri afdráttarlausu afstöðu sem þetta nýja félag tekur til Evrópusambandsins. Ef þetta er fyrirboði þess sem koma skal er […]

Pólitískt skítkast

Pólitískt skítkast er afskaplega leiðinlegt fyrirbæri. Þess vegna er athyglisvert og sorglegt að forsætisráðherra beitti því af kappi í upphafi síðustu viku og ný ungliðahreyfing, Ungir jafnaðarmenn, hefur feril sinn á sömu nótum í lok sömu viku.