Hoppa í efni

Alþjóðlegi geðheilbrigðisdagurinn

Sigurður Hólm Gunnarsson | 23.09.2009

Þann 10. október næstkomandi er Alþjóðlegi geðheilbrigðisdagurinn. Haldið verður upp á daginn í göngugötunni í Mjódd og í húsakynnum Hugarafls að Álfabakka 16 frá kl. 13:00 – 16:30. Fjölbreytt dagskrá verður á staðnum. Boðið verður upp á skemmtiatriði af ýmsum toga fyrir fólk á öllum aldri auk þess sem kynningarbásar verða í göngugötunni þar sem boðið verður upp á fræðslu um geðheilbrigðismál. Bæði notendur og starfsmenn geðheilbrigðisþjónustunnar sjá um fræðslu og dagskrá. Ég hvet alla til að koma við og kynna sér málefni geðfatlaðra.

Nánari upplýsingar um Alþjóða geðheilbrigðisdaginn er að finna á vefsíðu dagsins www.10okt.com.

Skoða 1 athugasemdFela athugasemdir
  1. Stefán E. Hafsteinsson 26. september 2009

    Þetta verður einn geðgóðasti dagurinn á árinu og það má enginn missa af honum!

Skrifa athugasemd

Netfangið birtist ekki. Málefnaleg umræða er vel þegin.

Nafn, netfang og IP-tala eru vistuð með athugasemdinni. Sjá persónuvernd.

Skrifa athugasemd

Um höfundinn

Sigurður Hólm Gunnarsson

Stofnaði Skoðun árið 1999, þegar vefurinn var meðal fyrstu vefrita á Íslandi. Hér skrifar hann greinar og hugleiðingar um stjórnmál, hugmyndafræði, heimspeki og menningu, í anda frjálslyndis og umburðarlyndis.

Allar greinar höfundar (839) →

Fleiri greinar sem tengjast: Heilsa og velferð

Stillingar vafrakaka

Nauðsynleg geymsla man valið þitt. Prófílmyndir og utanaðkomandi myndir falla undir virkni; myndbönd og samfélagsmiðlaefni undir markaðssetningu og innfellingar. Independent Analytics mælir heimsóknir á vefþjóninum án vafrakaka og er aðskilið frá þessum flokkum.