Það eru fáar atvinnugreinar sem kvarta jafn hátt yfir gjöldum og sjávarútvegurinn og ferðaþjónustan. Það má helst ekki rukka veiðigjöld og guð forði okkur frá því að hækka þau. Og um leið og einhver nefnir gjaldtöku í ferðaþjónustu virðist allt vera að fara á hliðina.
Svo koma tölurnar. Samkvæmt bráðabirgðatölum Hagstofunnar skilaði sjávarútvegurinn tæplega 64 milljörðum króna í hagnað árið 2025. Það er 55,5 prósenta aukning á einu ári. Brim, Samherji og Síldarvinnslan högnuðust hvert um sig um meira en átta milljarða. Í helstu greinum ferðaþjónustunnar batnaði afkoman í heild um 55,1 prósent, þótt hún hafi versnað hjá gististöðum og ferðaskrifstofum.
Auðvitað skiptir máli hvernig gjöldin eru útfærð. Lítið gistiheimili og stórt fyrirtæki hafa ólíkt bolmagn. En þegar þeir sem græða milljarða láta eins og það sé fráleitt að borga meira fyrir að nýta sameiginlegar auðlindir okkar finnst mér alveg óþarfi að leita flókinna skýringa á vælinu. Þetta er græðgi.
Það er stórhættulegt að sætta sig við vaxandi misskiptingu. Það er eðlilegt að auðmenn og stórfyrirtæki leggi meira til samfélagsins. Fyrirtæki þurfa á menntuðu fólki, góðum vegum og heilbrigðisþjónustu að halda alveg eins og við hin. Öflugt velferðarsamfélag er ein af forsendunum fyrir því að þau geti blómstrað.
Við græðum öll á sanngjarnri skattheimtu. Hún er hluti af því sem kostar að reka siðað samfélag.
Heimildir
- Heimildin – Hverjir eru að græða á Íslandi?
- Hagstofa Íslands – Afkoma fyrirtækja nær óbreytt árið 2025



