„Ég var frosinn í gær og í morgun.“ Þannig lýsti íbúi á Sævarhöfða nóttunum í hjólhýsinu sínu í frétt RÚV. Þar býr fólk án rafmagns og vatns á meðan frostið í Reykjavík fer niður í tveggja stafa tölur. Maðurinn segist neyðast til að vera þar áfram. Frétt RÚV frá 17. nóvember
Það er einhver sérstök tegund af skeytingarleysi að loka fyrir vatn og rafmagn þar sem fólk býr og svipta það um leið möguleikanum á að hita híbýli sín. Um hávetur getur það kostað mannslíf. Er í alvöru ekki hægt að finna farsæla lausn fyrir fólk sem hefur lítið á milli handanna og á hvergi annars staðar höfði sínu að halla? Auðvitað er það hægt ef viljinn er fyrir hendi.
Borgarráð vísaði frá tillögu um að opna aftur fyrir vatn og rafmagn yfir veturinn. Meirihlutinn vísaði til óviðunandi brunavarna og fyrirhugaðrar uppbyggingar á svæðinu. Ef brunavarnir á svæðinu eru ófullnægjandi þarf borgin að útvega íbúunum öruggt húsaskjól. Hvar á fólkið að sofa í nótt? Fundargerð borgarráðs, 15. liður
Mér finnst sjálfum hjólhýsabyggð óheppilegt langtímaúrræði. Ég vil að fólk hafi kost á öruggu húsnæði sem það hefur efni á. Ef borgin vill leggja byggðina niður þarf hún að bjóða fólkinu sem þar býr raunhæfan kost og gefa því færi á að nýta sér hann áður en hún lokar. Þannig verður búseta við þessar aðstæður óþörf.
Það þarf að tala við fólkið sem enn býr á Sævarhöfða og tryggja því hlýtt og öruggt húsaskjól strax. Þangað til þarf borgin að tryggja fólkinu örugga aðstöðu með vatni, hita og rafmagni. Það er ómanneskjulegt að skilja fólk eftir í nístingskulda og láta eins og málið sé afgreitt af því að tölvan segir að svæðinu hafi verið lokað.



