Hoppa í efni

Hugvíkkandi efni á mannamáli – nýr vefur

Sigurður Hólm Gunnarsson | 01.11.2026

Ég hef opnað nýjan vef, hugvikkandi.is, þar sem ég safna saman fræðslu á íslensku um hugvíkkandi efni, rannsóknir á þeim, mögulegan ávinning og áhættu.

Mig hefur lengi langað að gera þessar upplýsingar aðgengilegri. Umræðan um hugvíkkandi efni getur verið býsna hástemmd, bæði hjá þeim sem sjá í þeim lausn á öllum vanda og þeim sem vilja helst ekkert af þeim vita. Mér finnst þörf á jarðbundinni umræðu þar sem forvitni, gagnrýnin hugsun og umhyggja fá að fara saman.

Áhugi minn á þessum efnum á sér bæði persónulegar og faglegar rætur. Árið 2016 prófaði ég psilocybin, virka efnið í hugvíkkandi sveppum, eftir áratugalangt þunglyndi og margar tilraunir með hefðbundnar meðferðir. Ég upplifði nær algjöran bata frá þunglyndinu, þótt kvíðinn væri áfram til staðar. Reynslan hafði líka djúpstæð áhrif á sýn mína á sjálfan mig og tilveruna.

Ég fór þessa leið án faglegrar leiðsagnar. Þótt mér hafi farnast vel mæli ég ekki með því að fólk fylgi því fordæmi. Mín reynsla segir heldur ekki til um hvernig öðrum muni farnast.

Í kjölfarið fór ég að afla mér meiri þekkingar og lauk meðal annars námi í hugvíkkandi meðferð hjá Integrative Psychiatry Institute og sótti ítarlegt námskeið á vegum MAPS um meðferð með MDMA.

Ég hef trú á möguleikum þessara efna við réttar aðstæður. En sú trú má ekki ráða því hvaða rannsóknarniðurstöður fá athygli. Á vefnum er því fjallað um bæði jákvæðar og neikvæðar niðurstöður, það sem við vitum og það sem er enn óljóst.

Skaðaminnkun er þar í fyrirrúmi. Fólk þarf að geta nálgast upplýsingar um áhættu, aðstæður og stuðning án fordæmingar. Þekking og öryggi skipta máli, hvort sem fólk ákveður að nota þessi efni eða ekki.

Til að taka af allan vafa er þetta sjálfstætt verkefni mitt. Vefurinn er ekki á vegum félagsins Hugvíkkandi, sem heldur úti hugvikkandi.org. Ég var stofnfélagi og fyrsti formaður þess góða félags en sit ekki lengur í stjórn þess.

Kíkið endilega á https://hugvikkandi.is/. Ég vona að vefurinn nýtist þeim sem vilja fræðast, átta sig betur á umræðunni eða finna vandaðar heimildir til að lesa meira.

Ábendingar og málefnaleg gagnrýni eru vel þegnar.

Skrifa athugasemdLoka

Skrifa athugasemd

Netfangið birtist ekki. Málefnaleg umræða er vel þegin.

Nafn, netfang og IP-tala eru vistuð með athugasemdinni. Sjá persónuvernd.

Sjá einnig á Facebook

Um höfundinn

Sigurður Hólm Gunnarsson

Stofnaði Skoðun árið 1999, þegar vefurinn var meðal fyrstu vefrita á Íslandi. Hér skrifar hann greinar og hugleiðingar um stjórnmál, hugmyndafræði, heimspeki og menningu, í anda frjálslyndis og umburðarlyndis.

Allar greinar höfundar (841) →

Fleiri greinar sem tengjast: Persónulegt og daglegt líf

Stillingar vafrakaka

Nauðsynleg geymsla man valið þitt. Prófílmyndir og utanaðkomandi myndir falla undir virkni; myndbönd og samfélagsmiðlaefni undir markaðssetningu og innfellingar. Independent Analytics mælir heimsóknir á vefþjóninum án vafrakaka og er aðskilið frá þessum flokkum.