Ég fer reglulega með hann Mola minn í stuttar gönguferðir. Það er áhugaverð íþrótt.
Moli er að verða eins og hálfs árs gamall corgi og er vægast sagt þrjóskur. Hann stoppar á nokkurra sekúndna fresti, sest niður eða ætlar í allt aðra átt en ég. Svo horfir hann á mig með vandlætingarsvip þegar ég hlýði honum ekki. Stundum gefst ég upp og geri eins og hann vill, sem er líklega hluti vandans.
Eitt af því skemmtilegasta við gönguferðirnar okkar er þó að eftir tvær til þrjár mínútur birtist yfirleitt hann Stjarni, þriggja ára högninn okkar. Hann hefur þá tekið eftir því að við Moli séum farnir út og ákveðið að skella sér með.
Í dag var þetta eins. Ég fór út með Mola og reyndi að sannfæra hann um að ganga í þá átt sem ég hafði hugsað mér. Svo kom Stjarni mjálmandi til okkar og saman gengum við þrír um hverfið.
Ef það er þá hægt að kalla það göngu þegar einn okkar sest niður á nokkurra sekúndna fresti og annar reynir að átta sig á hver ræður ferðinni.

