Einlægnin stóð upp úr á fundi mínum með Jóni Gnarr

Sigurður Hólm Gunnarsson | 16.10.2026

Ég er ekki viss um að ég skilji til fulls hvers vegna Jón Gnarr sagði sig úr þingflokki Viðreisnar. Hann hefur lýst langvarandi skorti á skýrri forystu, ákvarðanafælni og klíkumyndun. Hann hefur líka sagt að hann hefði viljað fá meiri stuðning við málefni barna í alvarlegum vanda, þótt hann viðurkenni að margt hafi áunnist. Hann hyggst áfram styðja ríkisstjórnina. Ég þekki ekki innri samskipti þingflokks Viðreisnar og ætla ekki að þykjast geta dæmt um þau.

Eitt tel ég mig hins vegar vita: Jón hefur einlægan áhuga á málefnum barna. Sérstaklega þeirra barna sem eiga undir högg að sækja.

Fyrir kosningar hafði Jón samband við mig og bað mig að hitta sig til að ræða úrbætur í málaflokki barna og ungmenna. Ég starfaði í tólf ár sem forstöðumaður á heimili fyrir unglinga í Reykjavík og hef því töluverða reynslu af þessum málum. Ég hef líka miklar skoðanir á því sem hægt er að gera betur.

Við hittumst á Múlakaffi. Fundurinn var bæði áhugaverður og skemmtilegur. Ég sagði Jóni heiðarlega frá minni upplifun og reynslu. Mér varð ljóst að hann vildi skilja aðstæður þessara barna og hvað þyrfti til að bæta þær. Þetta var gott og einlægt samtal og ég gekk vongóður frá fundinum. Ég var meira að segja næstum búinn að kjósa Viðreisn út á Jón Gnarr og áherslur hans.

Það var líka dálítið skemmtilegt að fylgjast með fólkinu í kringum okkur á Múlakaffi. Jón fór auðvitað ekki fram hjá neinum og fólk sem sat nálægt eða gekk framhjá tók eftir okkur. Sjálfur átti ég stundum erfitt með að halda aftur af hlátrinum. Jón var, eins og við mátti búast, fyndinn.

En það sem stóð upp úr var einlægnin.

Ég fór af fundinum sannfærður um að honum væri alvara með að vilja bæta stöðu barna og ungmenna sem standa höllum fæti. Ég hef enga ástæðu til að ætla annað en að sá áhugi sé enn til staðar.

Hvort vonbrigði með stuðning við barnamálin hafi átt afgerandi þátt í ákvörðun hans veit ég ekki. En mér finnst ástæða til að taka alvarlega þegar þingmaður segist ekki hafa fengið nægan stuðning til að vinna að málefnum barna í alvarlegum vanda. Ég vona að innan Viðreisnar og ríkisstjórnarinnar allrar sé vilji til að fylgja þessum málum eftir.

Ég hef enn töluverðar væntingar til þessarar ríkisstjórnar. Ég vil sjá velferðarmálin fá forgang í ákvörðunum, fjárveitingum og þeirri þjónustu sem fólk fær.

Ekki síst áherslu á þjónustu við þau börn, og fjölskyldur þeirra, sem eiga erfiðast með að láta í sér heyra.

Sjá einnig á Facebook

Stillingar vafrakaka

Nauðsynleg geymsla man valið þitt. Prófílmyndir og utanaðkomandi myndir falla undir virkni; myndbönd og samfélagsmiðlaefni undir markaðssetningu og innfellingar. Independent Analytics mælir heimsóknir á vefþjóninum án vafrakaka og er aðskilið frá þessum flokkum.