Hoppa í efni

Regnboginn heldur vöku fyrir Miðflokknum

Sigurður Hólm Gunnarsson | 30.10.2026

Ég sé í viðtali við Sigmund Davíð á Vísi í dag að hann er enn með regnbogafánann á heilanum. Hann vill bara íslenska fánann í skólum og opinberum byggingum. Regnbogafáninn gæti nefnilega ýtt börnum út í eitthvað „trend“.

Hann rifjar líka upp bandarísku hefðina að skólabörn standi upp, leggi hönd á hjarta og hylli þjóðfánann. Kannski leggur Miðflokkurinn til svipaða hefð hér á landi. Dagleg fánahylling væri þá ágæt, en regnbogafáni í skóla varasamur. Það er sérstakt mat á hugmyndafræðilegri innrætingu.

Svo eru það auðvitað útlendingarnir. Þeir virðast vera skýringin á nánast öllum vanda samfélagsins. Fánar, útlendingar og auðvitað transfólk. Það þarf alltaf að minnast á trans. MAGA-væðing Miðflokksins virðist vera fullkomnuð.

Á meðan hefur formaðurinn ekki tekið þátt í einni einustu af fyrstu 23 atkvæðagreiðslum þingsins. Kannski er það bara ágætt, miðað við áherslurnar.

Hann boðar þó nýjar tillögur í útlendingamálum og segist brátt ætla að vera aftur meðal þeirra sem tala mest á þingi.

Hlakkar ykkur ekki til?

Skrifa athugasemdLoka

Skrifa athugasemd

Netfangið birtist ekki. Málefnaleg umræða er vel þegin.

Nafn, netfang og IP-tala eru vistuð með athugasemdinni. Sjá persónuvernd.

Sjá einnig á Facebook

Um höfundinn

Sigurður Hólm Gunnarsson

Stofnaði Skoðun árið 1999, þegar vefurinn var meðal fyrstu vefrita á Íslandi. Hér skrifar hann greinar og hugleiðingar um stjórnmál, hugmyndafræði, heimspeki og menningu, í anda frjálslyndis og umburðarlyndis.

Allar greinar höfundar (839) →

Fleiri greinar sem tengjast: Börn og menntun

Stillingar vafrakaka

Nauðsynleg geymsla man valið þitt. Prófílmyndir og utanaðkomandi myndir falla undir virkni; myndbönd og samfélagsmiðlaefni undir markaðssetningu og innfellingar. Independent Analytics mælir heimsóknir á vefþjóninum án vafrakaka og er aðskilið frá þessum flokkum.