Reykjavíkurborg er greinilega ekki ein um uppsagnir. Nú leggur Hafnarfjarðarbær niður 23 störf, einkum í stjórnun, sérfræðivinnu og innri þjónustu. Markmiðið er sagt vera að verja grunnþjónustuna. Takið eftir því að það er ALLTAF markmiðið.
En grunnþjónusta stendur ekki ein og sér. Hún byggist á vinnu fólksins sem skipuleggur hana.
Hver tekur við verkefnunum? Eykst álagið á þau sem eftir sitja? Hvað verður látið bíða?
Þegar atvinnuleysi eykst, eins og það virðist gera núna, ætti hið opinbera þá ekki frekar að halda í starfsfólk eða jafnvel fjölga því? Sveitarfélög bera líka samfélagslega ábyrgð.
Sparnaður á launalið eins sveitarfélags getur orðið að kostnaði annars staðar hjá hinu opinbera. Atvinnuleysisbætur, minni skatttekjur og aukin þörf fyrir stuðning geta étið upp hluta sparnaðarins. Svo er það kostnaðurinn sem lendir á fólkinu sjálfu: tekjumissir, óöryggi og mögulegur heilsubrestur.
Stundum virðist þessi svokallaða hagræðing því helst felast í að færa peninga úr einum vasa í annan. Reikningurinn hverfur ekki þótt hann lendi annars staðar.
Það er auðvelt að telja sparaðar krónur. En hver telur tapaða þekkingu, aukið álag og samfélagslegan kostnað?



