Ég las Facebookfærslu hjá kunningja mínum sem virðist hafa dottið ofan í einhvern fúlan hægrihugmyndafræðipytt. Hann hafði ákveðið að hætta að styðja Amnesty vegna umfjöllunar samtakanna um kvennaúrræði sem J.K. Rowling stofnaði og þessa skelfilega fyrirbæris sem hann kallar „transaktívisma“.
Um þetta er margt að segja. Einkum tvennt.
Í fyrsta lagi er transaktívismi ekki einhver ein hugmyndafræði með miðstjórn og samþykkta stefnuskrá. Í grunninn er þetta réttindabarátta trans fólks. Barátta fyrir öryggi, jafnrétti og því að fá að lifa sínu lífi án mismununar og áreitni. Auðvitað má gagnrýna einstakar kröfur, aðferðir og framkomu fólks í þeirri baráttu. En að afgreiða hana alla sem stjórnlynda þvælu er ansi stórt stökk.
Og fyrst þessi félagi minn er að gagnrýna Amnesty skulum við hafa staðreyndirnar með. Breska deild samtakanna birti skjal þar sem Beira’s Place, stuðnings- og ráðgjafarúrræði í Edinborg fyrir konur sem hafa orðið fyrir kynferðisofbeldi, var flokkað sem „anti-rights“. J.K. Rowling stofnaði og fjármagnar úrræðið, sem tekur ekki á móti trans konum.
Amnesty dró skjalið síðan til baka og baðst sérstaklega afsökunar á þeirri flokkun. Það má alveg telja mistökin alvarleg. En leiðréttingin og afsökunarbeiðnin eru líka hluti af sögunni. Hvað þarf meira til að samtökin fái að bæta fyrir mistökin?
Í öðru lagi finnst mér þessi viðbrögð áhugaverð í ljósi alls vælsins um útilokunarmenningu. Sumir þeirra sem kvarta hæst yfir sniðgöngu vegna skoðana virðast sjálfir fljótir að grípa til hennar þegar þeim mislíkar afstaða annarra.
Auðvitað má fólk hætta að styrkja Amnesty. Það er hvorki ritskoðun né bannað. En sama frelsi hafa þeir sem sniðganga fyrirtæki, gagnrýna fólk harðlega fyrir skoðanir þess eða hætta að styðja listamenn vegna orða þeirra og gjörða.
Það er dálítið þreytandi að sniðganga sé kölluð prinsippfesta þegar maður gerir það sjálfur en refsiglöð útilokunarmenning þegar aðrir gera það.
Oft virðast þessi viðkvæmu hægriblóm sjálf eiga erfiðast með að umbera ólíkar skoðanir. Við þau segi ég einfaldlega: Cry me a river.



