Hoppa í efni

Að vera á móti öllu trúræði eða bara sumu?

Sigurður Hólm Gunnarsson | 13.11.2026

Lilja Benatov Hjartar hefur svarað mér aftur á Nútímanum. Ég hvet ykkur til að lesa pistilinn hennar. Ég ætla ekki að verja miklu meiri tíma í þessi orðaskipti en langar að gera nokkrar stuttar athugasemdir.

Ég sagði að Nútíminn hefði „birt grein mér til höfuðs“. Þar var ég að gera grín að framsetningu miðilsins, sem hóf fyrirsögnina á „Lilja sakar Sigurð …“. Ég var ekki að fullyrða að Lilja hefði skrifað pistilinn í þeim tilgangi.

Lilja segir að ég hafi komist að þeirri niðurstöðu að hún sé á móti samkynhneigðu fólki. Ég gagnrýndi hana fyrir að verja afstöðu kaþólsku kirkjunnar til samkynhneigðra. DV hafði eftir henni: „Samkynhneigða á að meðhöndla með virðingu, samúð og næmni, og er kallað eftir skírlífi.“ Ég spurði hana síðan hvort hún væri sjálf á móti því að samkynja pör stunduðu kynlíf. Hún segir að hún hafi verið að útskýra kenningu kirkjunnar og svarar spurningu minni svona: „Þér kemur það ekki við“. Ég læt það svar standa án túlkunar.

Lilja segir það strámann hjá mér að venjulegir múslimar séu látnir svara fyrir glæpi annarra. Hún tekur sjálf fram að hún vilji ekki dæma fólk fyrir trú þess. Gott og vel. En í umræðunni sem ég var að gagnrýna er allt of oft farið frá því að fjalla um ódæði tiltekinna manna yfir í að tala um múslima almennt eins og þeir þurfi að sanna að þeir séu á móti því. Það er þessi yfirfærsla sem ég er að gagnrýna.

Lilja hvetur mig til að „hætta að flýja inn í sögulegar líkingar, erlend stríðsátök og gamlar fyrirsagnir“ og lýkur svo pistlinum á að minnast hryðjuverkanna í París fyrir ellefu árum. Auðvitað eigum við að minnast fórnarlambanna. Parísarárásirnar eiga erindi í umræðu um trúarofstæki. Það sama á við um trúarlega réttlætingu hernaðar á Gaza og í Íran. Ég var að ræða samtímann.

Við Lilja erum sammála um að lög landsins eigi að standa ofar trúarreglum og að verja beri mannréttindi. Ágreiningurinn snýst frekar um hvað á heima í umræðunni. Hún vill halda sig við íslamisma og áskoranir í Evrópu. Ég vil líka ræða hvernig valdamenn réttlæta ofbeldi og skerðingu réttinda í nafni annarra trúarbragða. Ég er á móti öllu trúræði og öllu ofbeldi sem menn reyna að réttlæta með trú eða annarri hugmyndafræði. Ég sé enga ástæðu til að skipta um mælistiku eftir því hver á í hlut.

Heimildir

Skrifa athugasemdLoka

Skrifa athugasemd

Netfangið birtist ekki. Málefnaleg umræða er vel þegin.

Nafn, netfang og IP-tala eru vistuð með athugasemdinni. Sjá persónuvernd.

Sjá einnig á Facebook

Um höfundinn

Sigurður Hólm Gunnarsson

Sigurður Hólm Gunnarsson er stofnandi og ritstjóri Skoðunar frá 1999. Hann er iðjuþjálfi, ráðgjafi og sáttamiðlari og rekur Allir sáttir. Hann hefur víðtæka reynslu af stjórnun og starfi með ungmennum og fjölskyldum. Sigurður rekur einnig Proxima og hefur áralanga reynslu af vefhönnun, vefumsýslu og upplýsingatækni, með sérþekkingu á WordPress og diplómapróf í vefmiðlun frá Háskóla Íslands. Á Skoðun skrifar hann um samfélagsmál, samskipti, hugmyndafræði og menningu.

Allar greinar höfundar (850) →

Fleiri greinar sem tengjast: Fjölmiðlar og opinber umræða

Stillingar vafrakaka

Nauðsynleg geymsla man valið þitt. Prófílmyndir og utanaðkomandi myndir falla undir virkni; myndbönd og samfélagsmiðlaefni undir markaðssetningu og innfellingar. Independent Analytics mælir heimsóknir á vefþjóninum án vafrakaka og er aðskilið frá þessum flokkum.