Hoppa í efni

Réðst Ísrael á íslenskt vefhýsingarfyrirtæki?

Sigurður Hólm Gunnarsson | 21.11.2026

Í gær varð íslenska vefhýsingarfyrirtækið 1984 fyrir alvarlegri netárás og lokaði tímabundið fyrir alla þjónustu sína. Mörður Áslaugarson framkvæmdastjóri segir að sjö vefir hafi fyrst verið skemmdir. Lénsnöfnin benda til þess að þeir hafi allir tengst stuðningi við Palestínu. „En þetta er árás af stærðargráðu sem þjóðríki gera. Það eru ekkert mjög margir aðilar sem ráða við árás af þessari stærðargráðu,“ sagði Mörður í samtali við Vísi.

Mér datt Ísrael í hug þegar ég las hvaða vefir urðu fyrst fyrir skemmdum. Gætu aðilar á vegum ísraelskra stjórnvalda hafa reynt að þagga niður í fólki sem styður Palestínu? Það kæmi mér ekki á óvart. Þetta eru þó getgátur. Enn er óljóst hverjir stóðu að árásinni og hvað þeim gekk til.

Heimildir

Skrifa athugasemdLoka

Skrifa athugasemd

Netfangið birtist ekki. Málefnaleg umræða er vel þegin.

Nafn, netfang og IP-tala eru vistuð með athugasemdinni. Sjá persónuvernd.

Sjá einnig á Facebook

Um höfundinn

Sigurður Hólm Gunnarsson

Sigurður Hólm Gunnarsson er stofnandi og ritstjóri Skoðunar frá 1999. Hann er iðjuþjálfi, ráðgjafi og sáttamiðlari og rekur Allir sáttir. Hann hefur víðtæka reynslu af stjórnun og starfi með ungmennum og fjölskyldum. Sigurður rekur einnig Proxima og hefur áralanga reynslu af vefhönnun, vefumsýslu og upplýsingatækni, með sérþekkingu á WordPress og diplómapróf í vefmiðlun frá Háskóla Íslands. Á Skoðun skrifar hann um samfélagsmál, samskipti, hugmyndafræði og menningu.

Allar greinar höfundar (858) →

Fleiri greinar sem tengjast: Vísindi, gagnrýnin hugsun og tækni

Stillingar vafrakaka

Nauðsynleg geymsla man valið þitt. Prófílmyndir og utanaðkomandi myndir falla undir virkni; myndbönd og samfélagsmiðlaefni undir markaðssetningu og innfellingar. Independent Analytics mælir heimsóknir á vefþjóninum án vafrakaka og er aðskilið frá þessum flokkum.