Hoppa í efni

Hver á að svara fyrir ofbeldið?

Sigurður Hólm Gunnarsson | 19.11.2026

Að gefnu tilefni í kjölfar umræðu sem ég hef tekið þátt í undanfarna daga.

Ég er á móti öllu ofbeldi. Í meira en þrjátíu ár hef ég haldið því fram að fordómar og ofbeldi fái engan afslátt þótt fólk réttlæti þau með trú. Mér finnst ofbeldið jafn viðbjóðslegt hvort sem gerandinn er múslimi eða kristinn fasisti.

Auðvitað á að stöðva ofbeldismenn, vernda þolendur og láta brotamenn sæta ábyrgð. Stundum er umræðunni stillt upp eins og valið standi milli þess að vísa erlendum brotamönnum úr landi og leyfa þeim að halda áfram að brjóta af sér. Það er út í hött. Hægt er að taka hart á ofbeldi og koma fram af virðingu við fólk sem deilir trú eða þjóðerni með gerandanum.

Ég er fimmtugur og hef starfað í velferðargeiranum nánast alla mína starfsævi. Ég hef unnið með heimilislausu fólki, unglingum í vanda hjá barnavernd, fólki með fíknivanda, fátæku fólki og foreldrum í erfiðum félagslegum aðstæðum. Ég hef séð ofbeldi, vanrækslu og eymd í íslensku samfélagi sem fæstir kynnast.

Flest það versta sem ég hef orðið vitni að var rammíslenskt. Það þurfti enga innflutta trú eða menningu til. Ég hef líka í huga nýleg mál þar sem gerendurnir voru íslenskir karlmenn. Mér dettur samt ekki í hug að lesa slík mál sem lýsingu á íslenskum körlum almennt.

Mér finnst sérstakt að sjá menn með eigin ofbeldisferil stíga fram sem bjargvætti gegn ofbeldi útlendinga. Heimilisofbeldi og handrukkun verða ekkert skárri þótt gerandinn sé fæddur hér. Það væri hlægilegt ef það væri ekki svona sorglegt.

Þegar miðill eins og Nútíminn hamrar á fréttum um ódæði útlendinga, helst múslima, verður til ákveðin mynd af veruleikanum. Hver einasta frétt getur verið sönn og heildarmyndin samt skökk. Hversu algengir eru glæpirnir í hópnum? Fréttavalið svarar þeirri spurningu ekki. Það segir manni enn síður hvernig nágranninn, vinnufélaginn eða barnið í næsta sæti í skólanum er innrætt.

Flestum þykir sjálfsagt að greina á milli kristins fólks og kristinna öfgamanna. Við gerum ráð fyrir að kristið fólk lesi Biblíuna með ýmsum hætti og velji sjálft hvernig það lifir. Af hverju skyldi annað gilda um múslima? Sagan ætti að hafa kennt okkur hvað getur gerst þegar heill trúarhópur er gerður að ógn.

Ég hef miklu meiri áhyggjur af fátækt, misskiptingu, vanrækslu og velferðarkerfum sem fá ekki fjármagn til að sinna hlutverki sínu. Við getum eytt öllum deginum í að rífast um múslima, trans fólk og „vók vinstrið“ á meðan hinir ríku verða ríkari. Það er ótrúlega þægilegt fyrir þá sem njóta góðs af misskiptingunni.

Á meðan þurfa börn og fullorðnir að þola tortryggni og hatur fyrir það eitt að tilheyra hópi sem einhver hefur ákveðið að óttast. Hvernig eiga slíkar móttökur að auðvelda fólki að finna sig í samfélaginu?

Komum fram við fólk af virðingu, dæmum það eftir eigin verkum og tökum hart á ofbeldi. Byrjum á því.

Skrifa athugasemdLoka

Skrifa athugasemd

Netfangið birtist ekki. Málefnaleg umræða er vel þegin.

Nafn, netfang og IP-tala eru vistuð með athugasemdinni. Sjá persónuvernd.

Sjá einnig á Facebook

Um höfundinn

Sigurður Hólm Gunnarsson

Sigurður Hólm Gunnarsson er stofnandi og ritstjóri Skoðunar frá 1999. Hann er iðjuþjálfi, ráðgjafi og sáttamiðlari og rekur Allir sáttir. Hann hefur víðtæka reynslu af stjórnun og starfi með ungmennum og fjölskyldum. Sigurður rekur einnig Proxima og hefur áralanga reynslu af vefhönnun, vefumsýslu og upplýsingatækni, með sérþekkingu á WordPress og diplómapróf í vefmiðlun frá Háskóla Íslands. Á Skoðun skrifar hann um samfélagsmál, samskipti, hugmyndafræði og menningu.

Allar greinar höfundar (854) →

Fleiri greinar sem tengjast: Fjölmiðlar og opinber umræða

Stillingar vafrakaka

Nauðsynleg geymsla man valið þitt. Prófílmyndir og utanaðkomandi myndir falla undir virkni; myndbönd og samfélagsmiðlaefni undir markaðssetningu og innfellingar. Independent Analytics mælir heimsóknir á vefþjóninum án vafrakaka og er aðskilið frá þessum flokkum.