Það er varla hægt að skoða frétt eða færslu á Facebook um mannréttindi, fátækt, hatur eða fordóma án þess að þar birtist flóð af hlátursköllum. Einhver segir frá því að hafa orðið fyrir fordómum eða eiga varla fyrir mat. Þá mæta hægrisinnuðu greyin til að hlæja að vanlíðan samborgara sinna.
Athugasemdirnar sem fylgja eru oft ekkert skárri. En það eru hláturskarlarnir sem slá mig mest. Þessi brenglaða þörf fyrir að láta aðra vita að manni finnist eymd þeirra fyndin.
Er til eitthvað ógeðslegra? Og er helvíti yfirhöfuð nógu rúmgott til að hýsa allt þetta lið?



