Hoppa í efni

Umræðuþáttur um einelti – (Myndband)

Sigurður Hólm Gunnarsson | 28.04.2014

Einelti er alvarlegt ofbeldi sem getur haft alvarlegar langvarandi afleiðingar fyrir þá sem lenda í því. Sem dæmi virðist kvíði og vanlíðan vera 10-20 sinnum algengari hjá eineltisfórnarlömbum auk þess sem þau eru með mun minna sjálfsálit en aðrir. Ýmsar rannsóknir benda til þess að einelti geti haft svipuð áhrif á heilsu og líðan þolenda og kynferðisleg misnotkun eða alvarleg vanræksla. Áhrifin geta varað langt fram á fullorðinsár.

Það er til mikils að vinna að sporna gegn einelti á öllum vígstöðvum.

Undirritaður tók þátt í umræðuþætti um einelti á ÍNN á föstudaginn langa. Hægt er að horfa á upptöku af þættinum hér fyrir neðan. Ég hvet áhugasama til að horfa og deila:


(Þáttastjórnandi var Elín Hirst en í panel voru Jón Gunnar Bernburg, prófessor við HÍ, Viðar Freyr Guðmundsson kvikmyndagerðarmaður sem nýlega sendi frá sér heimildamyndina Allt um einelti, Kolbrún Baldursdóttir sálfræðingur og Sigurður Hólm Gunnarsson.)

 Sjá nánar:

Skrifa athugasemdLoka

Skrifa athugasemd

Netfangið birtist ekki. Málefnaleg umræða er vel þegin.

Nafn, netfang og IP-tala eru vistuð með athugasemdinni. Sjá persónuvernd.

Um höfundinn

Sigurður Hólm Gunnarsson

Stofnaði Skoðun árið 1999, þegar vefurinn var meðal fyrstu vefrita á Íslandi. Hér skrifar hann greinar og hugleiðingar um stjórnmál, hugmyndafræði, heimspeki og menningu, í anda frjálslyndis og umburðarlyndis.

Allar greinar höfundar (839) →

Fleiri greinar sem tengjast: Einelti

Stillingar vafrakaka

Nauðsynleg geymsla man valið þitt. Prófílmyndir og utanaðkomandi myndir falla undir virkni; myndbönd og samfélagsmiðlaefni undir markaðssetningu og innfellingar. Independent Analytics mælir heimsóknir á vefþjóninum án vafrakaka og er aðskilið frá þessum flokkum.