Hope Knútsson vinkona mín var að gefa út endurminningar sínar, „Von frá Brooklyn“. Ég fór á útgáfuhófið fyrr í dag og sótti mitt eintak af bókinni. Þar hitti ég marga vini og fyrrum samstarfsmenn, bæði úr Siðmennt og iðjuþjálfun. Það var bæði gefandi og gaman. Best var þó að hitta Hope og gefa henni knús.
Hope fluttist til Íslands árið 1974, tveimur árum áður en ég vaknaði til þessarar tilvistar, og hefur lagt mikið af mörkum til íslensks samfélags. Hún barðist fyrir framgangi iðjuþjálfunar hér á landi og var einn helsti drifkrafturinn að stofnun Siðmenntar. Fyrir ævistarf sitt í þágu húmanisma hefur hún hlotið viðurkenningar. Að mínu mati er hún besti formaður sem Siðmennt hefur haft, að öllum öðrum ólöstuðum.
Ég á svolítið erfitt með að lýsa því hversu vænt mér þykir um Hope og hversu mikil áhrif hún hefur haft á mig. Við kynntumst í Siðmennt, áttum þar farsælt samstarf og urðum góðir vinir. Á tímabili töluðum við saman daglega, oft mörgum sinnum á dag, um allt milli himins og jarðar. Aðallega um húmanisma og lífsins glímur.
Ég á Hope margt að þakka. Hún hefur verið mér mikilvægur vinur og fyrirmynd á margan hátt. Það er til dæmis að miklu leyti henni að þakka að ég ákvað að læra iðjuþjálfun.
Ég hlakka mikið til að lesa bókina hennar. ❤️



