Hoppa í efni

Áttu afrit sem þú kemst í?

Sigurður Hólm Gunnarsson | 23.11.2026

Sem betur fer segir framkvæmdastjóri vefhýsingarfyrirtækisins 1984 að engin gögn hafi glatast í netárásinni og að til séu afrit af vefjunum sem voru skemmdir. Nú er unnið að því að koma vefjunum aftur í loftið. Á meðan geta eigendur þeirra þurft að bíða eftir að komast í gögnin sín.

Þess vegna tek ég reglulega afrit af vefjunum sem ég sé um og geymi þau utan vefhýsingarinnar. Ef hýsingin fer niður kemst ég samt í mín afrit og get komið vef upp annars staðar ef á þarf að halda.

Það getur líka verið góð hugmynd að hýsa tölvupóstinn á öðrum stað en vefurinn er hýstur. Þá getur maður áfram sent og tekið á móti pósti þótt vefhýsingin detti út. Það er sjaldnast góð hugmynd að hafa öll eggin í einni körfu.

Heimildir

Skrifa athugasemdLoka

Skrifa athugasemd

Netfangið birtist ekki. Málefnaleg umræða er vel þegin.

Nafn, netfang og IP-tala eru vistuð með athugasemdinni. Sjá persónuvernd.

Sjá einnig á Facebook

Um höfundinn

Sigurður Hólm Gunnarsson

Sigurður Hólm Gunnarsson er stofnandi og ritstjóri Skoðunar frá 1999. Hann er iðjuþjálfi, ráðgjafi og sáttamiðlari og rekur Allir sáttir. Hann hefur víðtæka reynslu af stjórnun og starfi með ungmennum og fjölskyldum. Sigurður rekur einnig Proxima og hefur áralanga reynslu af vefhönnun, vefumsýslu og upplýsingatækni, með sérþekkingu á WordPress og diplómapróf í vefmiðlun frá Háskóla Íslands. Á Skoðun skrifar hann um samfélagsmál, samskipti, hugmyndafræði og menningu.

Allar greinar höfundar (859) →

Fleiri greinar sem tengjast: Vísindi, gagnrýnin hugsun og tækni

Stillingar vafrakaka

Nauðsynleg geymsla man valið þitt. Prófílmyndir og utanaðkomandi myndir falla undir virkni; myndbönd og samfélagsmiðlaefni undir markaðssetningu og innfellingar. Independent Analytics mælir heimsóknir á vefþjóninum án vafrakaka og er aðskilið frá þessum flokkum.