Hoppa í efni

Söfnun fyrir Semu?

Sigurður Hólm Gunnarsson | 24.11.2026

Það er forkastanlegt að verið sé að eyða tíma dómkerfisins í þetta heimskulega mál gegn Semu Erlu Serdaroglu. Solaris safnaði fé til að hjálpa fólki sem hafði fengið dvalarleyfi á Íslandi að komast frá Gasa. Nú er Sema fyrir dómi vegna þess að söfnunin var ekki tilkynnt sýslumanni áður en hún hófst.

Ákæruvaldið fer fram á að hún verði sektuð um 400 þúsund krónur. Lögregla hafði áður fellt málið niður í tvígang. Samt erum við komin hingað.

Ég er að hugsa um að mótmæla þessari vitleysu með því að efna til söfnunar til styrktar Semu, án þess að tilkynna sýslumanni það strax. Ef við gerum þetta nokkur getum við væntanlega séð dómkerfinu fyrir verkefnum næstu árin.

Heimildir

Skrifa athugasemdLoka

Skrifa athugasemd

Netfangið birtist ekki. Málefnaleg umræða er vel þegin.

Nafn, netfang og IP-tala eru vistuð með athugasemdinni. Sjá persónuvernd.

Sjá einnig á Facebook

Um höfundinn

Sigurður Hólm Gunnarsson

Sigurður Hólm Gunnarsson er stofnandi og ritstjóri Skoðunar frá 1999. Hann er iðjuþjálfi, ráðgjafi og sáttamiðlari og rekur Allir sáttir. Hann hefur víðtæka reynslu af stjórnun og starfi með ungmennum og fjölskyldum. Sigurður rekur einnig Proxima og hefur áralanga reynslu af vefhönnun, vefumsýslu og upplýsingatækni, með sérþekkingu á WordPress og diplómapróf í vefmiðlun frá Háskóla Íslands. Á Skoðun skrifar hann um samfélagsmál, samskipti, hugmyndafræði og menningu.

Allar greinar höfundar (861) →

Fleiri greinar sem tengjast: Mannréttindi og jafnrétti

Stillingar vafrakaka

Nauðsynleg geymsla man valið þitt. Prófílmyndir og utanaðkomandi myndir falla undir virkni; myndbönd og samfélagsmiðlaefni undir markaðssetningu og innfellingar. Independent Analytics mælir heimsóknir á vefþjóninum án vafrakaka og er aðskilið frá þessum flokkum.