Ég vona að Demókratar nái báðum deildum Bandaríkjaþings í kosningunum í dag. Það myndi ekki losa okkur við Trump en myndi veita honum nauðsynlegt aðhald.
Líkurnar eru ágætar. Í spá Decision Desk HQ frá 2. nóvember voru Demókratar með 84% líkur á að ná fulltrúadeildinni, 65% á öldungadeildinni og 63% á að vinna báðar. Það er ástæða til bjartsýni, þótt reynslan ætti að hafa kennt okkur að fagna ekki áður en atkvæðin eru talin.
Það sem mér finnst þó áhugaverðast er uppgangur frambjóðenda sem tala skýrt fyrir félagslegu réttlæti. Heilbrigðisþjónustu fyrir alla, réttindum launafólks og minni völdum auðmanna. Það er nefnilega ekki nóg að vera bara á móti Trump. Fólk þarf eitthvað til að kjósa með.
Að mínu mati er ein lykilástæðan fyrir því að Trump komst til valda sú að Demókratar hafa brugðist almenningi með því að berjast ekki af nægilegri festu fyrir bættum lífskjörum og réttlátara samfélagi. Þeir hafa verið of hikandi í baráttunni fyrir heilbrigðisþjónustu fyrir alla og því að sporna gegn auðsöfnun og völdum fámennrar auðstéttar.
Þegar fólk upplifir að hefðbundnir stjórnmálamenn ætli engu að breyta verður jarðvegurinn frjór fyrir lýðskrumara sem lofar að hrista upp í kerfinu. Demókratar þurfa að bjóða upp á meira en að vera skárri en Trump. Það er vægast sagt lágt viðmið.
James Talarico í Texas er einn þeirra sem bjóða upp á áhugaverðan valkost. Hann er fyrrverandi kennari og guðfræðinemi sem keppir við Ken Paxton. Hann leggur áherslu á lægri framfærslukostnað, aðhald gagnvart stórfyrirtækjum og að auðmenn greiði stærri hlut. Mér finnst áhugavert að sjá mann tala um kristna trú í samhengi við félagslega ábyrgð fremur en sem réttlætingu fyrir afskiptum af einkalífi annarra.
Sigur Talaricos yrði sögulegur. Demókrati hefur ekki unnið öldungadeildarsæti í Texas síðan Lloyd Bentsen var endurkjörinn árið 1988, fyrir 38 árum. Flokkurinn hefur heldur ekki unnið kosningu um embætti þar sem allt ríkið er eitt kjördæmi síðan 1994. Talarico er því að reyna að rjúfa áratugalanga sigurgöngu Repúblikana. Það eitt að hann eigi raunhæfa möguleika er athyglisvert.
Talarico vill líka binda enda á stríðið í Íran. Hann fordæmir árásir á óbreytta borgara á Gaza, svelti og sameiginlegar refsingar og vill stöðva sölu árásarvopna til ríkisstjórnar Netanyahus. Hann styður þó áfram varnarbúnað fyrir Ísrael og hefur ekki viljað nota orðið þjóðarmorð um aðgerðirnar á Gaza. Mér finnst hann mega vera afdráttarlausari þar.
En sá sem ég er hvað spenntastur fyrir er Abdul El-Sayed í Michigan.
Abdul er læknir, alvöru vinstrisinni og studdur af Bernie Sanders. Hann vill opinbert sjúkratryggingakerfi fyrir alla, draga úr áhrifum auðmanna og fyrirtækja í stjórnmálum og setja þarfir almennings í fyrirrúm. Hann keppir við Repúblikanann Mike Rogers í baráttu sem gæti ráðið miklu um meirihlutann í öldungadeildinni.
Það skiptir mig líka máli að Abdul talar skýrt gegn þjóðarmorðinu á Gaza og vill hætta bandarískum hernaðarstuðningi við Ísrael. Hann er jafnframt eindregið á móti stríðinu í Íran og krefst þess að því verði hætt. Troy Jackson og fleiri úr vinstri armi flokksins hafa líka tekið skýra afstöðu gegn hernaðinum. Það er löngu tímabært að fleiri bandarískir stjórnmálamenn tali af festu um mannréttindi og frið, líka þegar eigin stjórnvöld bera ábyrgð.
Og Abdul er múslimi. Það virðist gera suma gjörsamlega vitlausa.
Trump hefur kallað hann jihadista og gefið í skyn að honum sé ekki treystandi inn í þinghúsið án sérstakrar öryggisleitar. Engar sannanir liggja fyrir um þau tengsl við öfgasamtök sem reynt hefur verið að hengja á hann. Þetta eru fordómar og hræðsluáróður, ekki málefnaleg gagnrýni á heilbrigðisstefnu frambjóðanda.
Þetta minnir óþægilega á árásirnar á Zohran Mamdani í New York. Þar var múslimi sem talaði um húsnæði, barnagæslu og lífskjör líka gerður að trúarlegri ógn. Í kjölfar sigurs hans í forkosningunum bárust meðal annars morðhótanir og samanburður við hryðjuverkin 11. september.
Tveir múslimar og svolítið af náungakærleik
Mér finnst ákveðin kaldhæðni í þessu. Þessir tveir múslimar, Abdul og Mamdani, virðast mér komast nær boðskap Jesú Krists um náungakærleik en margir þeirra sem veifa kristinni trú hæst í bandarískum stjórnmálum. Umhyggja fyrir fátækum og sjúkum. Umburðarlyndi. Frelsi til að vera maður sjálfur. Samfélag þar sem manngildið ræðst ekki af bankainnistæðunni.
Maður þarf ekkert að vera kristinn til að kunna að meta það.
Fleiri frambjóðendur eru athyglisverðir. Troy Jackson í Maine leggur áherslu á launafólk og heilbrigðisþjónustu fyrir alla. Peggy Flanagan í Minnesota vill meðal annars hærri lágmarkslaun og aðgengilega barnagæslu. Sherrod Brown í Ohio reynir að snúa aftur með áherslu á hag vinnandi fólks. Roy Cooper í Norður-Karólínu og Mary Peltola í Alaska eru hófsamari en gætu líka skipt miklu fyrir meirihlutann.
Demókratar eru því enginn samstæður vinstriflokkur. En framboð Abduls sýnir að þar er hægt að berjast fyrir skýrri vinstristefnu og ná árangri.
Ég vona að það skili honum alla leið í öldungadeildina. Ekki vegna trúar hans heldur vegna þess sem hann stendur fyrir.
Það væri ágætt að fá meira af náungakærleik inn á bandaríska þingið. Jafnvel þótt múslimi þurfi að koma með hann.



