Hoppa í efni

Mannúð okkar þarf að ná til allra

Sigurður Hólm Gunnarsson | 08.10.2026

Í gær, 7. október, voru þrjú ár liðin frá viðurstyggilegri hryðjuverkaárás Hamas á Ísrael. Þessi tímamót minna jafnframt á upphaf hernaðar Ísraels á Gaza og þá óverjanlegu þjóðernishreinsun sem þar hefur verið framin.

Afstaða mín til þessara atburða er þekkt. Að þessu sinni vil ég þó benda á yfirlýsingar Bernie Sanders og Zohran Mamdani í tilefni þessara tímamóta. Annar er gyðingur, hinn múslimi. Ég tek undir orð þeirra beggja.

Sanders fordæmir árás Hamas afdráttarlaust. Hann segir, í íslenskri þýðingu:

„Að drepa saklaust fólk af ásetningi er aldrei andspyrna. Það er glæpur gegn mannkyni. Það er stríðsglæpur.“

Hann viðurkennir rétt Ísraels til að verja sig og ráðast gegn Hamas, en segir að ríkisstjórn Netanyahus hafi háð þjóðarmorð gegn palestínsku þjóðinni á Gaza. Hann kallar eftir því að Bandaríkin hætti að vopna ísraelsk stjórnvöld og beiti sér fyrir mannúðaraðstoð, raunverulegu vopnahléi, uppbyggingu og varanlegum friði.

Mamdani minnist einnig fórnarlamba Hamas og sorgar þeirra sem misstu ástvini sína. Hann fordæmir jafnframt það sem hann lýsir sem áframhaldandi þjóðarmorði ísraelskra stjórnvalda á Gaza. Í niðurlagi segir hann, í íslenskri þýðingu:

„Til að heiðra hina látnu verðum við að berjast fyrir heimi þar sem hver manneskja getur lifað við frelsi, öryggi og reisn.“

Þetta get ég tekið undir. Við getum fordæmt hryðjuverk Hamas, syrgt fórnarlömb þeirra og um leið fordæmt þjóðernishreinsun og ofbeldi ísraelskra stjórnvalda gegn Palestínumönnum. Mannúð okkar þarf að ná til allra.

Heimildir: Yfirlýsing Bernie Sanders · Yfirlýsing Zohran Mamdani

Skrifa athugasemdLoka

Skrifa athugasemd

Netfangið birtist ekki. Málefnaleg umræða er vel þegin.

Nafn, netfang og IP-tala eru vistuð með athugasemdinni. Sjá persónuvernd.

Sjá einnig á Facebook

Um höfundinn

Sigurður Hólm Gunnarsson

Stofnaði Skoðun árið 1999, þegar vefurinn var meðal fyrstu vefrita á Íslandi. Hér skrifar hann greinar og hugleiðingar um stjórnmál, hugmyndafræði, heimspeki og menningu, í anda frjálslyndis og umburðarlyndis.

Allar greinar höfundar (839) →

Fleiri greinar sem tengjast: Alþjóðamál

Stillingar vafrakaka

Nauðsynleg geymsla man valið þitt. Prófílmyndir og utanaðkomandi myndir falla undir virkni; myndbönd og samfélagsmiðlaefni undir markaðssetningu og innfellingar. Independent Analytics mælir heimsóknir á vefþjóninum án vafrakaka og er aðskilið frá þessum flokkum.