Hoppa í efni

Heimurinn er fullur af góðu fólki

Sigurður Hólm Gunnarsson | 08.10.2026

Ég tek eftir því hvað ég get verið duglegur að nöldra í skrifum mínum um eitthvað neikvætt. En það má ekki gleyma því að heimurinn er fullur af gleði og góðmennsku. Fullur af góðu fólki sem vill öðrum vel. Það góða á líka skilið að fá athygli.

Síðastliðinn sólarhring hef ég átt samskipti við nokkra úr þeim hópi. Í morgun aðstoðaði yndislegur tannlæknir miðjudrenginn minn með einstaklega hlýlegri framkomu. Ég hef átt í góðum samskiptum við frábæra kennara sem leggja sig fram til að sjá til þess að börnunum mínum vegni vel og líði vel í skólanum.

Í gær sinnti frábær starfsmaður í gleraugnaverslun mér og mínum ónýtu augum í augnskoðun. Og síðast en ekki síst hitti ég í vikunni yndislega sálfræðinginn minn, sem hefur hjálpað mér mikið.

Þetta fólk vinnur ólík störf, en á það sameiginlegt að láta sig aðra varða. Það skiptir máli hvernig við mætum hvert öðru, hvort sem við erum að aðstoða barn, kenna eða sinna manneskju sem leitar hjálpar.

Ég er svo þakklátur fyrir allt það góða fólk sem er í lífi mínu og ég á samskipti við reglulega. Það er fátt sem bætir lífsgæðin meira en góð samskipti við gott fólk.

Skrifa athugasemdLoka

Skrifa athugasemd

Netfangið birtist ekki. Málefnaleg umræða er vel þegin.

Nafn, netfang og IP-tala eru vistuð með athugasemdinni. Sjá persónuvernd.

Sjá einnig á Facebook

Um höfundinn

Sigurður Hólm Gunnarsson

Stofnaði Skoðun árið 1999, þegar vefurinn var meðal fyrstu vefrita á Íslandi. Hér skrifar hann greinar og hugleiðingar um stjórnmál, hugmyndafræði, heimspeki og menningu, í anda frjálslyndis og umburðarlyndis.

Allar greinar höfundar (839) →

Fleiri greinar sem tengjast: Persónulegt og daglegt líf

Stillingar vafrakaka

Nauðsynleg geymsla man valið þitt. Prófílmyndir og utanaðkomandi myndir falla undir virkni; myndbönd og samfélagsmiðlaefni undir markaðssetningu og innfellingar. Independent Analytics mælir heimsóknir á vefþjóninum án vafrakaka og er aðskilið frá þessum flokkum.