Warning: foreach() argument must be of type array|object, null given in /home/u721286725/domains/skodun.is/public_html/wp-content/themes/Divi/includes/builder-5/server/Packages/Module/Options/Css/CssStyleUtils.php on line 196

Meira woke. Minna umburðarlyndi gagnvart fasisma

Sigurður Hólm Gunnarsson | 07.10.2026

Undanfarin misseri hefur mér þótt fordómaseggir og jafnvel sjálfsyfirlýstir fasistar verða meira áberandi á netinu. Þeir skrifa færslur, mæta í athugasemdakerfi og taka þátt í umræðum á samfélagsmiðlum. Alltof oft fá þeir að gera þetta mótspyrnulítið. Stundum er þeim meira að segja svarað vinalega, rétt eins og ekkert sé sjálfsagðara en að ræða hvort tilteknir hópar fólks eigi að njóta sömu réttinda og aðrir.

Þetta finnst mér ekki í lagi.

Hvað erum við eiginlega að samþykkja þegar við leyfum svona málflutningi að ganga óáreittum? Hvaða skilaboð fær fólkið sem fordómarnir beinast að? Á það bara að sitja hjá og horfa á aðrir ræða mannlega reisn þess eins og hvert annað álitamál?

Ég tel að við þurfum að draga miklu skýrari mörk. Sá sem boðar fasisma eða gerir lítið úr fólki vegna uppruna þess, kynhneigðar eða annarra persónueinkenna á að mæta harðri gagnrýni. Það þarf að benda á hvað hann segir, hvað það þýðir og hvers vegna slíkur málflutningur er óásættanlegur.

Það þarf að afhjúpa þetta fólk með þess eigin opinberu orðum. Sýna fordómana sem það reynir að fela á bak við tal um „heilbrigða skynsemi“, „áhyggjur“ eða „óþægilegar spurningar“. Þegar einhver segir berum orðum að hann sé fasisti ætti að minnsta kosti enginn að þurfa að velkjast í vafa um hvað sé á ferðinni.

Stjórnendur umræðuhópa og athugasemdakerfa bera hér ábyrgð. Þeir eiga að fjarlægja fordómafullan áróður og vísa þeim út sem halda honum til streitu. Við hin getum gagnrýnt málflutninginn, sniðgengið þá sem boða hann og gert þeim skýrt að þeir séu ekki velkomnir með hann á okkar umræðuvettvang.

Það er engin skylda að útvega fasistum áheyrendur.

Mér finnst líka kominn tími til að gagnrýna harðlega þetta svokallaða venjulega fólk sem tekur þátt í að gera fasista að gjaldgengum viðmælendum. Fólk sem brosir, spjallar og heldur áfram vinalegum samskiptum þótt viðmælandinn hafi rétt áður gert lítið úr heilum hópi fólks.

Það fólk þarf að svara fyrir sig. Af hverju skiptir kurteisin við fordómasegginn meira máli en virðingin fyrir þeim sem hann ræðst að? Af hverju er ætlast til að aðrir kyngi niðurlægingunni svo umræðan geti haldið áfram í góðu skapi?

Ég hef enga þolinmæði fyrir slíku.

Umburðarlyndi verður að fela í sér að fólk geti tekið þátt í samfélaginu án þess að mannleg reisn þess sé stöðugt dregin í efa. Við verðum að verja það rými. Það gerum við meðal annars með því að láta fordóma mæta mótspyrnu strax, líka þegar það er óþægilegt og skemmir stemninguna.

Og ef það kallast „woke“ að taka slíka ábyrgð þá vil ég meira woke.

Miklu meira.

Ég vil að við hættum að gera kurteisi við fasista að einhverju siðferðilegu afreki. Ég vil að fordómaseggir þurfi að svara fyrir orð sín. Ég vil að þeir finni að samfélagið hafni málflutningi þeirra og að fólk sé tilbúið að standa með þeim sem verða fyrir honum.

Fasistar eiga að mæta skýrri og harðri mótspyrnu. Við berum öll ábyrgð á að veita hana

Sjá einnig á Facebook