Hoppa í efni

JÁ við aðildarviðræðum við ESB

Sigurður Hólm Gunnarsson | 23.08.2026

Ég vil segja JÁ við aðildarviðræðum við ESB. Af hverju? Af því ég vil fá að taka ákvörðun sjálfstætt út frá fullgerðum samningi. Ekki út frá því sem að þú, [Hannes Hólmsteinn]*, Ólafur Ragnar, Samherji, talsmenn einhverra flokka eða aðrir hagsmunaaðilar fullyrða að felist í aðild. Ég er sjálfstæður maður og vil ekki láta aðra segja mér fyrir verkum.

Ég reyni að taka upplýstar ákvarðanir út frá gögnum og staðreyndum. Ekki út frá skoðunum eða fullyrðingum annarra. Ég skil ekki NEI sinna því að með því að segja nei er sumt fólk að koma í veg fyrir að allir aðrir fái fullnægjandi upplýsingar um aðild. Hver getur verið á móti betri upplýsingum? Ég skil það einfaldlega ekki. Ég skil heldur ekki fólk sem er svo hrokafullt að það þykist vita nákvæmlega hvað felst í aðild án þess að fá samning.

Að lokum tek ég það fram að ef ég yrði neyddur til að taka afstöðu til AÐILDAR að ESB núna án fullnægjandi upplýsinga, án samnings, myndi ég að sjálfsögðu segja NEI. Ég tek upplýstar ákvarðanir út frá staðreyndum, ekki út frá hugarburði annars fólks.

*Bæti Hannesi við þessa upptalningu þar sem hann er farinn að gera athugasemdir við færslur hjá mér.

Skrifa athugasemdLoka

Skrifa athugasemd

Netfangið birtist ekki. Málefnaleg umræða er vel þegin.

Nafn, netfang og IP-tala eru vistuð með athugasemdinni. Sjá persónuvernd.

Sjá einnig á Facebook

Um höfundinn

Sigurður Hólm Gunnarsson

Stofnaði Skoðun árið 1999, þegar vefurinn var meðal fyrstu vefrita á Íslandi. Hér skrifar hann greinar og hugleiðingar um stjórnmál, hugmyndafræði, heimspeki og menningu, í anda frjálslyndis og umburðarlyndis.

Allar greinar höfundar (839) →

Fleiri greinar sem tengjast: Alþjóðamál

Stillingar vafrakaka

Nauðsynleg geymsla man valið þitt. Prófílmyndir og utanaðkomandi myndir falla undir virkni; myndbönd og samfélagsmiðlaefni undir markaðssetningu og innfellingar. Independent Analytics mælir heimsóknir á vefþjóninum án vafrakaka og er aðskilið frá þessum flokkum.