Hoppa í efni

Á ég fyrst að fara í kynleiðréttingu eða þungunarrof?

Sigurður Hólm Gunnarsson | 06.11.2026

Sem miklum aðdáanda „Dark Woke“ finnst mér ógeðslega fyndið að lesa trollið í garð MAGA-liðsins á X eftir kosningarnar. Fólk er að taka allar helstu martraðir þess um „woke“ og gera úr þeim ríkisstjórnaráætlun. Okkar „Project 2027“.

Nú á að breyta öllum Cheesecake Factory-veitingastöðum í þungunarrofsstofur. Setja ný fornöfn í umferð sem enginn getur einu sinni borið fram. Banna cis-fólki að stunda íþróttir. Og auðvitað fara hús úr húsi til að bólusetja Repúblikana.

Einn leggur til að kenna heilaormi Roberts F. Kennedy yngri gagnrýna kynþáttafræði (critical race theory). Annar vill setja barnastjörnuna Ms. Rachel á hundrað dollara seðilinn. Svo er Chick-fil-A skipað að hafa framvegis opið á sunnudögum.

Ein manneskja er svo spennt að hún veit ekki hvar hún á að byrja: „Á ég fyrst að fara í kynleiðréttingu eða þungunarrof?“ Önnur birtir teikningu af konu með höfuðslæðu og gervifót á regnbogalitum bakgrunni og segir: „Þetta kvöld var fyrir hana.“

Í einni færslunni er haft eftir Abdul El-Sayed að fyrst Trump eigi svona erfitt með nafnið hans geti hann einfaldlega kallað hann „öldungadeildarþingmann“ eftir embættistökuna. Við því spyr einn: „Ég hélt að múslimar mættu ekki elda svín?“ Þar er auðvitað verið að vísa til þess að Abdul hafi „roastað“ Trump.

Og fyrir þá sem eru þegar komnir í biðröð eftir nýjum fornöfnum eru skilaboðin skýr: „HALDIÐ YKKUR Í RÖÐINNI.“

Eftir allan hræðsluáróðurinn um transfólk, bólusetningar, múslima og voðalega vinstrimenn er eitthvað afskaplega heilbrigt við að svara þessu með svona fáránlegum húmor. Taka bullið, skrúfa það upp í ellefu og hlæja aðeins.

Það besta er að margir fatta ekki að þetta er troll. Það er ógeðslega fyndið og sorglegt í senn.

WOKE 3.0 verður „legendary“.

Skjáskot 1 af gamansömum færslum á X eftir bandarísku þingkosningarnar.
Skjáskot 2 af gamansömum færslum á X eftir bandarísku þingkosningarnar.
Skjáskot 3 af gamansömum færslum á X eftir bandarísku þingkosningarnar.
Skjáskot 4 af gamansömum færslum á X eftir bandarísku þingkosningarnar.
Skjáskot 5 af gamansömum færslum á X eftir bandarísku þingkosningarnar.
Skjáskot 6 af gamansömum færslum á X eftir bandarísku þingkosningarnar.
Skjáskot 7 af gamansömum færslum á X eftir bandarísku þingkosningarnar.
Skrifa athugasemdLoka

Skrifa athugasemd

Netfangið birtist ekki. Málefnaleg umræða er vel þegin.

Nafn, netfang og IP-tala eru vistuð með athugasemdinni. Sjá persónuvernd.

Sjá einnig á Facebook

Um höfundinn

Sigurður Hólm Gunnarsson

Stofnaði Skoðun árið 1999, þegar vefurinn var meðal fyrstu vefrita á Íslandi. Hér skrifar hann greinar og hugleiðingar um stjórnmál, hugmyndafræði, heimspeki og menningu, í anda frjálslyndis og umburðarlyndis.

Allar greinar höfundar (844) →

Fleiri greinar sem tengjast: Hæðni

Stillingar vafrakaka

Nauðsynleg geymsla man valið þitt. Prófílmyndir og utanaðkomandi myndir falla undir virkni; myndbönd og samfélagsmiðlaefni undir markaðssetningu og innfellingar. Independent Analytics mælir heimsóknir á vefþjóninum án vafrakaka og er aðskilið frá þessum flokkum.