Hoppa í efni

Ætla kristnir ekki að fordæma Russell Brand sérstaklega?

Sigurður Hólm Gunnarsson | 08.11.2026

Russell Brand, sem hefur undanfarin ár verið áberandi í kristilegri umræðu og meðal hægrimanna, var 5. nóvember sakfelldur fyrir nauðgun og þrjár kynferðisárásir gegn fjórum konum.

Brand gaf út bókina How to Become a Christian in 7 Days í maí á þessu ári. Í trúarlegum málflutningi sínum leggur hann meðal annars áherslu á persónulega endurfæðingu í Kristi, fyrirgefningu og frelsun frá synd. Hann hefur einnig sjálfur skírt fólk og birt myndir af athöfnunum á samfélagsmiðlum. Í september 2024 vakti til dæmis athygli þegar hann skírði mann í vatni, sjálfur klæddur nærbuxunum einum.

Hann hefur því ekki farið leynt með trú sína heldur beinlínis boðið öðrum leiðsögn að Kristi. Hægrimaðurinn og fjölmiðlamaðurinn Tucker Carlson hefur veitt honum vettvang til þess. Á viðburði í september 2024 ræddu þeir trúskipti Brands og Carlson bað hann að ljúka samkomunni með bæn.

Mér finnst því lágmark að allir sem búa á Íslandi og telja sig kristna fordæmi Brand opinberlega. Ekki bara brotin heldur líka þær trúarskoðanir sem hann hefur boðað. Þetta er jú þeirra maður. Þetta á sérstaklega við um kristna innflytjendur hér á landi. Annaðhvort afneiti þeir trúarskoðunum Brands eða flytji úr landi.

Er þetta ekki sjálfsögð krafa?

Nei, auðvitað ekki. Hann er ekki múslimi…

Skrifa athugasemdLoka

Skrifa athugasemd

Netfangið birtist ekki. Málefnaleg umræða er vel þegin.

Nafn, netfang og IP-tala eru vistuð með athugasemdinni. Sjá persónuvernd.

Sjá einnig á Facebook

Um höfundinn

Sigurður Hólm Gunnarsson

Sigurður Hólm Gunnarsson er stofnandi og ritstjóri Skoðunar frá 1999. Hann er iðjuþjálfi, ráðgjafi og sáttamiðlari og rekur Allir sáttir. Hann hefur víðtæka reynslu af stjórnun og starfi með ungmennum og fjölskyldum. Sigurður rekur einnig Proxima og hefur áralanga reynslu af vefhönnun, vefumsýslu og upplýsingatækni, með sérþekkingu á WordPress og diplómapróf í vefmiðlun frá Háskóla Íslands. Á Skoðun skrifar hann um samfélagsmál, samskipti, hugmyndafræði og menningu.

Allar greinar höfundar (845) →

Fleiri greinar sem tengjast: Hæðni

Stillingar vafrakaka

Nauðsynleg geymsla man valið þitt. Prófílmyndir og utanaðkomandi myndir falla undir virkni; myndbönd og samfélagsmiðlaefni undir markaðssetningu og innfellingar. Independent Analytics mælir heimsóknir á vefþjóninum án vafrakaka og er aðskilið frá þessum flokkum.