Hoppa í efni

Áhugavert spjall um detox

Sigurður Hólm Gunnarsson | 18.09.2009

Það er ákveðið detox æði á Íslandi í dag enda hefur sú meðferð fengið gríðarlega mikla umræðu undanfarið. Í nánast öllum tilfellum hefur verið rætt við fólk sem hefur farið í detox og er afskaplega ánægt. Minna hefur verið fjallað gagnrýnið um detox meðferð enda virðast fjölmiðlamenn almennt gera ráð fyrir því að þetta sé allra meina bót. Á vefsíðu detox er enda talað um að ristilskolun geti læknað ólíklegustu kvilla eins og gigt, psoriasis, astma, ofnæmi, há- og lágþrýsting, höfuðverk, nikótín- áfengis- og lyfjaeitrun svo eitthvað sé nefnt.

En eru til einhverjar vísindalegar rannsóknir sem staðfesta gagnsemi þessarar undrameðferðar? Stutta svarið er nei.

Í Vísindaþættinum á Útvarpi Sögu var tekið viðtal við Svan Sigurbjörnsson lækni, félaga minn, þar sem hann fjallar um nauðsyn þess að allar meðferðir gangist undir vísindalegar prófanir. Hann bendir réttilega á að fátt bendi til þess að detox skili þeim árangri sem lofað er og því sé vægast sagt vafasamt að auglýsa meðferðina sem töfralausn. Ég hvet alla til að hlusta á þetta fróðlega viðtal.

Sjá nánar:
Viðtal við Svan Sigurbjörnsson, lækni, í Vísindaþættinum
Grein Svans um detox
Vefsíða Vísindaþáttarins
Vefsíða Detox á Íslandi

Skrifa athugasemdLoka

Skrifa athugasemd

Netfangið birtist ekki. Málefnaleg umræða er vel þegin.

Nafn, netfang og IP-tala eru vistuð með athugasemdinni. Sjá persónuvernd.

Um höfundinn

Sigurður Hólm Gunnarsson

Stofnaði Skoðun árið 1999, þegar vefurinn var meðal fyrstu vefrita á Íslandi. Hér skrifar hann greinar og hugleiðingar um stjórnmál, hugmyndafræði, heimspeki og menningu, í anda frjálslyndis og umburðarlyndis.

Allar greinar höfundar (839) →

Fleiri greinar sem tengjast: Vísindi, gagnrýnin hugsun og tækni

Stillingar vafrakaka

Nauðsynleg geymsla man valið þitt. Prófílmyndir og utanaðkomandi myndir falla undir virkni; myndbönd og samfélagsmiðlaefni undir markaðssetningu og innfellingar. Independent Analytics mælir heimsóknir á vefþjóninum án vafrakaka og er aðskilið frá þessum flokkum.