Hoppa í efni

Ekki náðist í ritstjóra Morgunblaðsins…

Sigurður Hólm Gunnarsson | 25.09.2009

Davíð Oddsson er góður penni, hann hefur sterkar skoðanir og gífurlega þekkingu á öllu því sem tengist íslenskum stjórnmálum. Allt ákjósanlegir eiginleikar fyrir ritstjóra Morgunblaðsins. Það að Davíð sé augljóslega Sjálfstæðismaður er nánast aukaatriði. Allir ritstjórar Morgunblaðsins hafa verið Sjálfstæðismenn. Ekkert nýtt þar á ferð.

Þau atriði sem gera Davíð þó algerlega óhæfan, þrátt fyrir aðra kosti, til að ritstýra virtasta dagblaði landsins eru þó mun veigameiri í mínum huga. Hann var forsætisráðherra frá 1991 til 2004 og utanríkisráðherra frá 2004 til 2005. Maðurinn stýrði ríkisstjórn Íslands þegar bankarnir voru einkavæddir og þegar útrásarvíkingarnir hófu að galdra peninga úr oft engu nema íslensku lofti. Hann var seðlabankastjóri Íslands þegar bankarnir hrundu. Ef marka má helstu aðdáendur hans hefur Davíð Oddsson borið höfuðábyrgð á þróun íslensks samfélags undanfarin ár. Reyndar hafa grúppíurnar nú aðeins dregið í land og segja Davíð einungis bera ábyrgð á því góða í íslensku samfélagi, hrunið er vondu kapítalistunum að kenna.

david_oddssonHvaða skoðun sem fólk hefur á ábyrgð Davíðs á íslenska efnahagsundrinu/hruninu er ljóst að stöðu sinnar vegna (sem ráðherra og seðlabankastjóri) á Davíð eftir að vera stórleikandi í fjölda frétta í nánustu framtíð. Hvað gerist þegar út koma skýrslur um bankahrunið? Hvað gerist ef nýjar upplýsingar koma upp á yfirborðið sem tengja Davíð við fall bankanna? Er líklegt að ritstjóri Morgunblaðsins verði reiðubúinn að veita öðrum fjölmiðlum viðtöl og svara spurningum þeirra? Heldur einhver að Davíð sé tilbúinn að veita öðrum fjölmiðlum upplýsingar sem gætu orðið að mikilvægri forsíðufrétt? Nei, auðvitað ekki.

Hvað með Morgunblaðið sjálft? Sjá menn það virkilega fyrir sér að blaðamenn þess blaðs grafi upp óþægilegar staðreyndir um Davíð, hringi svo í skiptiborðið til að fá samband, og krefji svo yfirmann sinn svara við erfiðum spurningum? Ætli þeir séu margir blaðamennirnir sem eru tilbúnir að taka slíka áhættu í kreppunni? Ég býst ekki við því.

Þegar aðrir fjölmiðlamenn reyna að ná í Davíð mun það sjaldnast takast og margar fréttir munu enda á „ekki náðist í ritstjóra Morgunblaðsins til að fá viðbrögð við umræddri frétt“.

Davíð Oddsson er fréttaefni, ekki efni í ritstjóra.

Skoða 3 athugasemdirFela athugasemdir
  1. Ingvar Valgeirsson 25. september 2009

    Vissulga var Davíð í stóru hlutverki þegar ósköpin dundu á - en á það ekki við líka um eigendur sumra annara fréttamiðla? Stórir hluthafar Glitnir, fyrsta bankans sem ríkið yfirtók, eiga stóran part í Stöð 2 og Fréttablaðinu.
    Gæti ekki vera Davíðs á Mogganum verið bráðnauðsynlegt mótvægi við það?

  2. Hófí 29. september 2009

    Ingvar. Það vill svo til að það er talsverður munur á ritstjóra blaðs og eiganda þess. Ritstjórinn er á staðnum og gefur skipanir, eigandinn er yfirleitt ekki á staðnum til að anda stöðugt ofan í hálsmálið á þér meðan þú sinnir vinnunni þinni. Hitt er svo aftur annað mál að ég held að oft séu blaðamenn að stunda sjálfsritskoðun af ótta við eigendavald, burtséð frá því hvað eigendur kynnu að gera í því ef sú ritskoðun væri ekki til staðar. Það væri klárlega betra ef fjölmiðlar væru í eigu einhverra annarra en Jóns Ásgeirs, en það er samt sem áður ekki hægt að bera eignarhald JÁ á Fbl/Vísi osfrv saman við ritstjórn DO á Mbl.

  3. Morten Lange 30. september 2009

    Vel mælt, Sigurður og Hófi !

Skrifa athugasemd

Netfangið birtist ekki. Málefnaleg umræða er vel þegin.

Nafn, netfang og IP-tala eru vistuð með athugasemdinni. Sjá persónuvernd.

Skrifa athugasemd

Um höfundinn

Sigurður Hólm Gunnarsson

Stofnaði Skoðun árið 1999, þegar vefurinn var meðal fyrstu vefrita á Íslandi. Hér skrifar hann greinar og hugleiðingar um stjórnmál, hugmyndafræði, heimspeki og menningu, í anda frjálslyndis og umburðarlyndis.

Allar greinar höfundar (839) →

Fleiri greinar sem tengjast: Fjölmiðlar og opinber umræða

Stillingar vafrakaka

Nauðsynleg geymsla man valið þitt. Prófílmyndir og utanaðkomandi myndir falla undir virkni; myndbönd og samfélagsmiðlaefni undir markaðssetningu og innfellingar. Independent Analytics mælir heimsóknir á vefþjóninum án vafrakaka og er aðskilið frá þessum flokkum.