Hoppa í efni

Trump í boði miðjumoðs

Sigurður Hólm Gunnarsson | 06.11.2024

„Hvernig fór Trump að því að vinna?“ spyrja margir. Svarið er frekar einfalt að mínu viti. Trump lofaði, aftur, að breyta kerfinu. Maður fólksins.

Demokratar fóru í manninn og reyndu mest að sækja fylgi til hægri eða inn á miðjuna. Engum nema atvinnupólitíkusum dettur í hug að það sé góð strategía.

Almenningur vill lausnir við áskoranir daglegs lífs. Heilbrigðisþjónustu og menntun án skuldafangelsis svo dæmi sé tekið. Bandarískur almenningur vill, eins og þorri alls almennings í heiminum, betra líf.

Slíkt samfélag er best byggt með framsæknum félagshyggjuhugmyndum. Fólkið sem tryggði Trump sigur er mikið til sama fólk og hefði kosið Bernie Sanders. Venjulegt fólk sem upplifir, réttilega, að stjórnmálamenn skilji ekki áhyggjur þess og hlusti ekki á það. Munurinn er auðvitað sá að Sanders boðar frið, samvinnu og mannúð á meðan Trump boðar útlendingaandúð, ófrið og fasisma (og já þeir sem tala eins og fasistar mega vera kallaðir fasistar).

Vonandi lærir félagshyggjufólk hér á fróni eitthvað af þessum hörmungum.

Skrifa athugasemdLoka

Skrifa athugasemd

Netfangið birtist ekki. Málefnaleg umræða er vel þegin.

Nafn, netfang og IP-tala eru vistuð með athugasemdinni. Sjá persónuvernd.

Sjá einnig á Facebook

Um höfundinn

Sigurður Hólm Gunnarsson

Stofnaði Skoðun árið 1999, þegar vefurinn var meðal fyrstu vefrita á Íslandi. Hér skrifar hann greinar og hugleiðingar um stjórnmál, hugmyndafræði, heimspeki og menningu, í anda frjálslyndis og umburðarlyndis.

Allar greinar höfundar (839) →

Fleiri greinar sem tengjast: Alþjóðamál

Stillingar vafrakaka

Nauðsynleg geymsla man valið þitt. Prófílmyndir og utanaðkomandi myndir falla undir virkni; myndbönd og samfélagsmiðlaefni undir markaðssetningu og innfellingar. Independent Analytics mælir heimsóknir á vefþjóninum án vafrakaka og er aðskilið frá þessum flokkum.