Hoppa í efni

Atvinnustjórnmálablaðrið í Silfrinu

Sigurður Hólm Gunnarsson | 21.10.2024

Þetta var nú meira atvinnustjórnmálablaðrið í Silfrinu í kvöld. Almennt kvabb um orkumál, fjölda stofnana og óljósir frasar um heilbrigðismál og húsnæðismál. Allir að reyna að tala af „yfirvegun“ og „ábyrgð“. Hingað til hef ég engan heyrt tala skýrt um mál sem skiptir fólki máli. Hvernig á að taka á biðlistum í heilbrigðiskerfinu? Hvaða aðgerðir, nákvæmlega, ætla flokkarnir að fara í til að tryggja hagsmuni barna, öryrkja, aldraðra, heimilislausra og annarra hópa sem illa geta varið sig? Hvað á að gera til að draga úr misskiptingu og örvæntingu fólks sem nær ekki endum saman? Hvernig á að tryggja betur að tekjulágt fólk eigi eða hafi aðgang að öruggu húsnæði? Hvernig á að bregðast við augljósum fjárskorti í félagslega kerfinu okkar, í skólunum eða á heilsugæslunni? Hvað með geðheilbrigðismál, skipta þau nokkru máli?

Í Silfrinu var lítið annað að heyra en atvinnustjórnmálablaður. Blaður frá fólki sem annaðhvort hefur ekki innsýn inn í kaldan veruleika almennings, eða hefur ekki áhuga á að kynna sér hann.

Ég auglýsi eftir fólki í framboði með skýrar hugmyndir sem skipta máli. Ég auglýsi eftir framsæknum hugmyndum.

Vaðið í hægrivillu

Áður en einhver fer að nöldra yfir því að framsæknar lausnir til hagsbóta fyrir almenning kosti of mikið, þá minni ég á að slíkt nöldur er einmitt bara það. Nöldur. Sérstök tegund af nöldri sem ég kalla hægrivillu.

Hægrivillan gengur út á það að horfa bara á aðra hlið jöfnunar, þ.e. kostnaðarhliðina, en gleyma um leið hversu mikið samfélagið allt græðir á því til lengri tíma, í beinhörðum peningum, að byggja upp öflugt velferðarsamfélag. Velferðarsamfélagið tryggir, til framtíðar, fleiri og öflugri vinnandi hendur sem skapa verðmæti.

Velferð dregur ekki bara úr eymd. Velferð er okkar besta fjárfesting til framtíðar.

Skrifa athugasemdLoka

Skrifa athugasemd

Netfangið birtist ekki. Málefnaleg umræða er vel þegin.

Nafn, netfang og IP-tala eru vistuð með athugasemdinni. Sjá persónuvernd.

Um höfundinn

Sigurður Hólm Gunnarsson

Stofnaði Skoðun árið 1999, þegar vefurinn var meðal fyrstu vefrita á Íslandi. Hér skrifar hann greinar og hugleiðingar um stjórnmál, hugmyndafræði, heimspeki og menningu, í anda frjálslyndis og umburðarlyndis.

Allar greinar höfundar (839) →

Fleiri greinar sem tengjast: Heimspeki og hugmyndafræði

Stillingar vafrakaka

Nauðsynleg geymsla man valið þitt. Prófílmyndir og utanaðkomandi myndir falla undir virkni; myndbönd og samfélagsmiðlaefni undir markaðssetningu og innfellingar. Independent Analytics mælir heimsóknir á vefþjóninum án vafrakaka og er aðskilið frá þessum flokkum.