Nú er kominn tími til að slíta stjórnmálasambandi við Bandaríkin. Trump boðar nú þjóðernishreinsanir í Gaza. Hann er ekki að bulla. Hann meinar það sem hann segir. Hann ætlar að herseta og eignast Gaza og reka alla íbúa, um tvær milljónir manna, úr heimalandi sínu með hervaldi og byggja upp sólarströnd í staðinn. Þessar fyrirætlanir eru klár brot á alþjóðalögum og mannréttindum. Þessi hryllingur bætist ofan á yfirlýsingar Trumps um að ætla að hrifsa til sín Grænlandi, Panamaskurðinum og jafnvel Kanada.
Íslensk stjórnvöld geta ekki annað en fordæmt harkalega þessa aðför að mannréttindum og heimsfriði.
Efnisorð: Alþjóðamál, Mannréttindi og jafnrétti
