Hoppa í efni

Til varnar mannréttindum

Sigurður Hólm Gunnarsson | 26.07.2004

Eins og við mátti búast eru dönsk og íslensk mannréttindasamtök að undirbúa málsóknir gagnvart stjórnvöldum í heimalöndum sínum vegna þeirra innflytjendalaga sem þar eru í gildi. Íslensk stjórnvöld voru ítrekað vöruð við því að skerða mannréttindi með útlendingalögunum sem sett voru haust en yfirvöld ákváðu að hlusta ekki á gagnrýnisraddir. Nú geta íslensk stjórnvöld átt von á því að vera kærð og jafnvel sakfelld fyrir mannréttindabrot. Enn ein ástæða til þess að vera stoltur af því að vera Íslendingur, eða hvað?

Lesendur eru eindregið hvattir til að kynna sér umræðuna sem átti sér stað hér á www.skodun.is um útlendingalögin áður en þau voru samþykkt. Ljóst er að yfirvöld geta ekki sagt að þau hafi ekki verið vöruð við.

Af Skoðun:
Góður fundur í Iðnó um útlendingafrumvarpið

Rasistar styðja útlendingafrumvarpið

Þverpólitísk undirskriftasöfnun gegn breytingum á lögum um útlendinga

Verða mannréttindi skert með lögum?


Skoðun - Greinar um fjölmenning
u

Umsagnir:
Umsögn Mannréttindaskrifstofu Íslands

Umsögn Fjölmenningarráðs og W.O.M.E.N

Umsögn Mannréttindasamtaka innflytjenda

 

Skoða 4 athugasemdirFela athugasemdir
  1. Jón Hákon Halldórsson 29. júlí 2004

    Eigum við ekki að bíða og sjá hvort málið verði dómfest og hvernig það þróast þá fyrir rétti áður en við förum að fullyrða út í bláinn að ríkisstjórnin hafi brotið mannréttindi og að andmælendur frumvarpsins hafi eitthvað komið þeim til varnar.

  2. Sigurður Hólm Gunnarsson 29. júlí 2004

    Ég get leyft mér að fullyrða að mannréttindi hafi verið skert með þessum lögum. Hvort stjórnvöld fái dóm á sig er annað mál.

  3. Hjörtur J. Guðmundsson 6. september 2004

    Þetta kemur allt saman í ljós. En hver sem niðurstaðan verður í þessum málum þá hafa ýmis mannréttindasamtök talað um meint mannréttindabrot danskra stjórnvalda í þessum efnum, og yfirvofandi málsóknir gegn þeim, allt frá því núverandi ríkisstjórn komst til valda í Danmörku í lok árs 2001. eða að verða 3 ár. Ekki veit ég hvað tekur svona langan tíma og hvers vegna ekki er löngu búið að kæra dönsk stjórnvöld fyrst um svona augljós mannréttindabrot er að ræða eins og sumir fullyrða að sé.

    Bendi annars á fróðlega frétt frá því í sumar sem tengist þessu þar sem Mannréttindadómstóll Evrópu (rétt að geta þess að dómstóllinn hefur ekkert með ESB að gera eins og sumir halda víst) komst að þeirri niðurstöðu að það bryti ekki í bága við mannréttindasáttmála Evrópu að banna múslimskum stúlkum að klæðast höfuðslæðum í ríkisreknum skólum. Óneitanlega áhugaverð niðurstaða.

  4. Hjörtur J. Guðmundsson 6. september 2004

    Gleymdi að láta fylgja tengil á umrædda frétt um dóm Mannréttindadómstólsins:

    http://www.euobserver.com/?aid=16778

Skrifa athugasemd

Netfangið birtist ekki. Málefnaleg umræða er vel þegin.

Nafn, netfang og IP-tala eru vistuð með athugasemdinni. Sjá persónuvernd.

Skrifa athugasemd

Um höfundinn

Sigurður Hólm Gunnarsson

Stofnaði Skoðun árið 1999, þegar vefurinn var meðal fyrstu vefrita á Íslandi. Hér skrifar hann greinar og hugleiðingar um stjórnmál, hugmyndafræði, heimspeki og menningu, í anda frjálslyndis og umburðarlyndis.

Allar greinar höfundar (839) →

Fleiri greinar sem tengjast: Mannréttindi og jafnrétti

Stillingar vafrakaka

Nauðsynleg geymsla man valið þitt. Prófílmyndir og utanaðkomandi myndir falla undir virkni; myndbönd og samfélagsmiðlaefni undir markaðssetningu og innfellingar. Independent Analytics mælir heimsóknir á vefþjóninum án vafrakaka og er aðskilið frá þessum flokkum.