Hoppa í efni

Góður fundur í Iðnó um útlendingafrumvarpið

Sigurður Hólm Gunnarsson | 16.04.2004

Fundurinn sem haldinn var í Iðnó í hádeginu um útlendingafrumvarpið var bæði áhugaverður og vel sóttur. Andri Óttarsson, lögfræðingur og penni hjá Deiglan.com; Tatjana Latinovic, varaformaður Félags kvenna af erlendum uppruna og Eyrún Ósk, nemi, fluttu stutt ávörp og gerði undirritaður tilraun til að stýra fundinum.


Gott hljóð var í gestum og augljóst að samstaðan gegn umræddu frumvarpi er mikil. Í lok fundar kvaddi Guðrún Ögmundsdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, sér hljóðs og sagðist vera alfarið á móti frumvarpinu í núverandi mynd og að henni þætti reyndar margt væri hægt að laga í núverandi lögum.

Lesendur eru áfram hvattir til að fá vini, vandamenn og kunningja til þess að kynna sér málið og skrifa undir mótmælin á www.deiglan.is/undirskrift.

Sjá nánar:
Ræða Andra Óttarssonar á fundi um útlendingafrumvarpið
Ræða Tatjana Latinovic á fundi um útlendingafrumvarpið

Skoða 2 athugasemdirFela athugasemdir
  1. Rúnar Bjarnason 16. apríl 2004

    Var rétt of fljótur að setja skoðun á síðustu grein. 🙂 Takk fyrir að halda okkur upplýstum.

  2. Sigurður Hólm Gunnarsson 17. apríl 2004

    Sæll Rúnar,

    Þú hefur kannski gaman af því að vita að Fréttablaðið birtir úrdrátt úr grein þinni í blaðinu í dag.:

    Vonbrigði
    Sjálfstæðismenn hafa oft valdið mér vonbrigðum. Það er sorglegt að flokkur sem stofnaður er út frá hugsjónum einstaklingsfrelsis skuli hýsa meðlimi sem svo oft falla í gryfju ráðlyndis og útþenslu ríkisvaldsins. Sitjandi kirkjumálaráðherra er einn slíkra vonbresta, og er nýjasta dæmið frumvarp hans, þingmál nr. 749 um breytingar á lögum um útlendinga nr. 96 frá 2002

    Rúnar Óli Bjarnason á Frjálshyggja.is

Skrifa athugasemd

Netfangið birtist ekki. Málefnaleg umræða er vel þegin.

Nafn, netfang og IP-tala eru vistuð með athugasemdinni. Sjá persónuvernd.

Skrifa athugasemd

Um höfundinn

Sigurður Hólm Gunnarsson

Sigurður Hólm Gunnarsson er stofnandi og ritstjóri Skoðunar frá 1999. Hann er iðjuþjálfi, ráðgjafi og sáttamiðlari og rekur Allir sáttir. Hann hefur víðtæka reynslu af stjórnun og starfi með ungmennum og fjölskyldum. Sigurður rekur einnig Proxima og hefur áralanga reynslu af vefhönnun, vefumsýslu og upplýsingatækni, með sérþekkingu á WordPress og diplómapróf í vefmiðlun frá Háskóla Íslands. Á Skoðun skrifar hann um samfélagsmál, samskipti, hugmyndafræði og menningu.

Allar greinar höfundar (858) →

Fleiri greinar sem tengjast: Mannréttindi og jafnrétti

Stillingar vafrakaka

Nauðsynleg geymsla man valið þitt. Prófílmyndir og utanaðkomandi myndir falla undir virkni; myndbönd og samfélagsmiðlaefni undir markaðssetningu og innfellingar. Independent Analytics mælir heimsóknir á vefþjóninum án vafrakaka og er aðskilið frá þessum flokkum.