Hoppa í efni

Þjóðfundur um þjóðarátak í málum aldraðra

Sigurður Hólm Gunnarsson | 10.05.2006

Aðstandendafélag aldraðra (AFA) hefur boðað til þjóðarfundar um málefni aldraðra. Fundurinn verður haldinn í Háskólabíói þann 16. maí næstkomandi. Fundurinn hefst klukkan 20:00.

Ég hvet alla til að mæta og sýna málefninu stuðning.

Hægt er að lesa meira um fundinn á nýrri vefsíðu AFA (www.hjaafa.is).

Hér fyrir neðan er tilkynning um fundinn frá AFA:

16. maí kl. 20.00 í Háskólabíói

Stefán Ólafsson prófessor, flytur erindi: “Lífskjör aldraðra á Íslandi”

Boðaðir hafa verið á fundinn í pallborð: Formenn stjórnmálaflokkanna
Geir H. Haarde, Guðjón A. Kristjánsson, Halldór Ásgrímsson, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir og Steingrímur J. Sigfússon.

Fulltrúar Sambands íslenskra sveitarfélaga (Steinunn Valdís Óskarsdóttir og Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson). Fulltrúi Landssamtaka lífeyrissjóða (Hrafn Magnússon)

Fundarstjóri:
Ragnar Aðalsteinsson, hrl.

Sýnum samstöðu – fyllum húsið!

Fundurinn verður tengdur með streymi Símans við Ísafjörð, Akureyri og Egilsstaði.

Skrifa athugasemdLoka

Skrifa athugasemd

Netfangið birtist ekki. Málefnaleg umræða er vel þegin.

Nafn, netfang og IP-tala eru vistuð með athugasemdinni. Sjá persónuvernd.

Um höfundinn

Sigurður Hólm Gunnarsson

Stofnaði Skoðun árið 1999, þegar vefurinn var meðal fyrstu vefrita á Íslandi. Hér skrifar hann greinar og hugleiðingar um stjórnmál, hugmyndafræði, heimspeki og menningu, í anda frjálslyndis og umburðarlyndis.

Allar greinar höfundar (839) →

Fleiri greinar sem tengjast: Heilsa og velferð

Stillingar vafrakaka

Nauðsynleg geymsla man valið þitt. Prófílmyndir og utanaðkomandi myndir falla undir virkni; myndbönd og samfélagsmiðlaefni undir markaðssetningu og innfellingar. Independent Analytics mælir heimsóknir á vefþjóninum án vafrakaka og er aðskilið frá þessum flokkum.