Hoppa í efni

Ron Paul – ný hetja netvæddra repúblíkana

Sigurður Hólm Gunnarsson | 18.07.2007

Ný stjarna repúblíkana er fædd. Ron Paul berst fyrir að verða útnefndur næsti forsetaframbjóðandi repúblíkana og er orðinn ansi vinsæll á netinu. Á hann sér þekkta aðdáendur á borð við sjónvarpsstjörnuna Bill Maher. Reyndar mælist Ron Paul ekki með nema um tveggja prósenta fylgi sem stendur en það gæti breyst. Kannanir benda til þess að flestir sem ná að heyra hann halda ræðu verði mjög hrifnir. Hörð afstaða hans gegn stríðinu í Írak er það sem gerir Paul helst umdeildan meðal repúblíkana sem annað hvort hata hann eða elska. Andstaða hans við stríðsrekstur vakti áhuga minn í fyrstu (enda óvenjulegt af repúblíkana að hafa slíka afstöðu) en eftir að hafa skoðað önnur stefnumál hans sé ég að maðurinn er mesti íhaldsdurgur.

Sem dæmi vill hann banna fóstureyðingar, er á móti öllum skattahækkunum, hann vill koma í veg fyrir að innflytjendur setjist að í BNA (og þeir eiga alls ekki að fá neina heilbrigðisþjónustu), hann er á móti öllum alþjóðlegum samtökum (þar á meðal Sameinuðu þjóðunum og Alþjóðlega stríðsglæpadómsstólnum) og að sjálfsögðu telur hann stefnumál sín vera í anda Jesú Krist og að öll réttindi manna séu frá Guði komin.

Bandarísk pólitík er undarleg...

Sjá nánar:
Heimasíða Ron Paul

Skoða 1 athugasemdFela athugasemdir
  1. Birta 18. september 2007

    Ron Paul er líklega ekki eins mikill trúarnöttari og George Bush. Í fyrsta lagi var handaupplyfting i kappræðum frambjóðenda Repúblikana, þar sem þeir sem sögðust EKKI trúa á þróunarkenninguna áttu að rétta upp hönd. Ron Paul rétti ekki upp hönd, sem gefur til kynna að hann skilji og viðurkenni að líffræðileg þróun, og sameiginlegur uppruni tegundanna, er staðreynd. (Bush vill hinsvegar láta kenna um "vitræna hönnun" í skólum)

    Í öðru lagi hefur hann komið fram í þáttum Bill Maher, sem er þekktur fyrir að gagnrýna öll trúarbrögð.
    http://atheistmedia.blogspot.com/search/label/Bill%20Maher

    Bill þessi Maher er einn af stuðningsmönnum Ron Pauls, og er hann nefndur sem stuðningsmaður á heimasíðu framboðs Pauls. Ég held að Bush myndi t.d. ekki vilja slíkan stuðningsmann. Ron Paul virðist möo vera eitthvað umburðarlyndari en fólk í kristilega armi Repúblikana flokksins.

    http://www.youtube.com/watch?v=WUYDt7kC3Z0

Skrifa athugasemd

Netfangið birtist ekki. Málefnaleg umræða er vel þegin.

Nafn, netfang og IP-tala eru vistuð með athugasemdinni. Sjá persónuvernd.

Skrifa athugasemd

Um höfundinn

Sigurður Hólm Gunnarsson

Stofnaði Skoðun árið 1999, þegar vefurinn var meðal fyrstu vefrita á Íslandi. Hér skrifar hann greinar og hugleiðingar um stjórnmál, hugmyndafræði, heimspeki og menningu, í anda frjálslyndis og umburðarlyndis.

Allar greinar höfundar (841) →

Fleiri greinar sem tengjast: Alþjóðamál

Stillingar vafrakaka

Nauðsynleg geymsla man valið þitt. Prófílmyndir og utanaðkomandi myndir falla undir virkni; myndbönd og samfélagsmiðlaefni undir markaðssetningu og innfellingar. Independent Analytics mælir heimsóknir á vefþjóninum án vafrakaka og er aðskilið frá þessum flokkum.