Hoppa í efni

Um mótmælaaðgerðir

Sigurður Hólm Gunnarsson | 16.07.2007

Ég velti því stundum fyrir mér eðli mótmælaaðgerða. Af hverju eru vinstri menn svona duglegir að fara í körfugöngur gegn umhverfisspjöllum og við að hlekkja sig við gröfur og aðrar vinnuvélar? Af hverju leggja hægri menn það á sig reglulega að hlekkja sig við skattframtöl og hindra frelsi almenning til að hnýsast um skattframlag samborgara sinna?

Nú get ég alveg skilið andstöðu fólks við náttúruspjöll og ég hef samúð með þeirri skoðun að tekjur einstaklinga eigi að vera einkamál. Það sem ég skil ekki er að nokkrum manni þyki þessi mál vera þess eðlis að nauðsynlegt sé að fara í róttækar mótmælaaðgerðir. Fyrir mér er svo margt alvarlegra í okkar samfélagi.

Af hverju eru nánast engin fjöldamótmæli gegn aðbúnaði aldraðra á Íslandi. Af hverju eru ekki reglulega skrílslæti á götum úti til að mótmæla biðlistum hjá Barna og unglingageðdeild? Af hverju hlekkjar enginn sig við anddyri fjármálaráðuneytisins til að mótmæla óráðsíu stjórnvalda? Hvar eru öll mótmælin í Kringlunni (musteri Mammons) gegn fátækt barna og skorti á tannlæknaþjónustu?

Með öðrum orðum velti ég því fyrir mér hvers vegna sum mál (umhverfismál og skattframtöl) vekja upp gífurlegar tilfinningar og viðbrögð á meðan önnur mál (sem ég tel í það minnsta jafn mikilvæg) virðast ekki hafa nein sérstök áhrif á atvinnumótmælendur Íslands. Hefur einhver svör við þessu?

Skoða 1 athugasemdFela athugasemdir
  1. Margrét St. Hafsteinsdóttir 16. júlí 2007

    Hæ Siggi.
    Takk fyrir heimsóknina á minni síðu. Hef skoðað þessa síðu og síðu Siðmenntar talsvert. Mig langar að ganga í Siðmennt.

    Varðandi pistilinn þinn hér fyrir ofan, þá vantar allan kjark í íslendinga og baráttuþrek að því er virðist. Ég er þó að reyna að gera eitthvað og hef skrifað og farið á fundi vegna málefna fanga m.a. og svo skrifa ég helling á moggablogginu eins og þú veist 🙂

    Væri gaman að hittast við tækifæri og spjalla. Sendu endilega póst á emailið mitt ef þú hefur tíma.

    Kveðjur, Magga.

Skrifa athugasemd

Netfangið birtist ekki. Málefnaleg umræða er vel þegin.

Nafn, netfang og IP-tala eru vistuð með athugasemdinni. Sjá persónuvernd.

Skrifa athugasemd

Um höfundinn

Sigurður Hólm Gunnarsson

Stofnaði Skoðun árið 1999, þegar vefurinn var meðal fyrstu vefrita á Íslandi. Hér skrifar hann greinar og hugleiðingar um stjórnmál, hugmyndafræði, heimspeki og menningu, í anda frjálslyndis og umburðarlyndis.

Allar greinar höfundar (841) →

Fleiri greinar sem tengjast: Stjórnmál og lýðræði

Stillingar vafrakaka

Nauðsynleg geymsla man valið þitt. Prófílmyndir og utanaðkomandi myndir falla undir virkni; myndbönd og samfélagsmiðlaefni undir markaðssetningu og innfellingar. Independent Analytics mælir heimsóknir á vefþjóninum án vafrakaka og er aðskilið frá þessum flokkum.