Hoppa í efni

Vottar Jehóva bjarga fjölskyldulífinu

Sigurður Hólm Gunnarsson | 19.07.2007

Forsíða Varðturnsins: Born again.Bankað var upp á hjá mér í vinnunni um daginn, en ég vinn á áfangaheimili. Þegar ég opnaði hurðina voru fyrir utan hjón (geri ráð fyrir því) og lítið barn (ca. fjögra ára). Fullorðna fólkið kynnti sig sem Votta Jehóva og bauð mér og íbúum heimilisins velkomið á landsmót Votta Jehóva í ágúst. Létu þau mig fá auglýsingableðil og báðu mig að dreifa honum til íbúanna. Samkvæmt auglýsingableðlinum verður margt hægt að læra á landsmótinu. Þar á meðal hvernig Kristur getur hjálpað þér að:

1) bæta fjölskyldulífið?
2) takast á við flókin vandamál?
3) styrkja sambandið við Guð?
4) standast gegn djöflinum?

og síðast en ekki síst:

5) hljóta eilíft líf?

Undirgefnar konur sem kalla eiginmann sinn „herra“
Það er ekki ætlun mín að fjalla um sambandið við Guð, djöfulinn, eilíft líf og önnur flókin vandamál. Mig langar þó aðeins að benda á hvernig Vottarnir ætla að bæta fjölskyldulífið.

Í auglýsingunni góðu kemur fram að ræða fyrir „[e]iginmenn, eiginkonur, foreldra [og] börn“ verður flutt á umræddu landsmóti sem byggð er á Fyrra Pétursbréfi 2:21 en þar segir:

„Til þessa eruð þér kallaðir. Því að Kristur leið einnig fyrir yður og lét yður eftir fyrirmynd, til þess að þér skylduð feta í hans fótspor.“

Hvernig hægt verður að búa til heila ræðu um þessar tvær stuttu og innihaldsrýru setningar veit ég ekki. Það er þó eflaust hægt að halda dágóðan pistil um fjölskyldulífið út frá setningunum sem koma á eftir, því fimm setningum síðar í Fyrra Pétursbréf 3:1-7 segir:

„Eins skuluð þér, eiginkonur, vera undirgefnar eiginmönnum yðar, til þess að jafnvel þeir, sem vilja ekki hlýða orðinu, geti unnist orðalaust við hegðun kvenna sinna, þegar þeir sjá yðar grandvöru og skírlífu hegðun. Skart yðar sé ekki ytra skart, hárgreiðslur, gullskraut og viðhafnarbúningur, heldur sé það hinn huldi maður hjartans í óforgengilegum búningi hógværs og kyrrláts anda. Það er dýrmætt í augum Guðs. Þannig skreyttu sig einnig forðum hinar helgu konur, er settu von sína til Guðs. Þær voru eiginmönnum sínum undirgefnar, eins og Sara hlýddi Abraham og kallaði hann herra. Og börn hennar eruð þér orðnar, er þér hegðið yður vel og látið ekkert skelfa yður.

Og þér eiginmenn, búið með skynsemi saman við konur yðar sem veikari ker og veitið þeim virðingu, því að þær munu erfa með yður náðina og lífið. Þá hindrast bænir yðar ekki.“

Er ekki dásamlegt að fjallað sé um fjölskyldulíf á þessum nótum árið 2007? Hvað ætli séu annars margir femínistar í Vottum Jehóva?

Skrifa athugasemdLoka

Skrifa athugasemd

Netfangið birtist ekki. Málefnaleg umræða er vel þegin.

Nafn, netfang og IP-tala eru vistuð með athugasemdinni. Sjá persónuvernd.

Um höfundinn

Sigurður Hólm Gunnarsson

Stofnaði Skoðun árið 1999, þegar vefurinn var meðal fyrstu vefrita á Íslandi. Hér skrifar hann greinar og hugleiðingar um stjórnmál, hugmyndafræði, heimspeki og menningu, í anda frjálslyndis og umburðarlyndis.

Allar greinar höfundar (841) →

Fleiri greinar sem tengjast: Heimspeki og hugmyndafræði

Stillingar vafrakaka

Nauðsynleg geymsla man valið þitt. Prófílmyndir og utanaðkomandi myndir falla undir virkni; myndbönd og samfélagsmiðlaefni undir markaðssetningu og innfellingar. Independent Analytics mælir heimsóknir á vefþjóninum án vafrakaka og er aðskilið frá þessum flokkum.