Brynjar Níelsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, er ekki ánægður með Pírata. Sakar þá um lýðskrum að hætti vinstrimanna, m.a. vegna þess að þeir vilja hækka fjármagnstekjuskatt og bjóða upp aflaheimildir.
Talandi um lýðskrum þá segir Brynjar einnig:
„Með hærri fjármagnstekjuskatti mun fjarmagnið leita annað og þá munu skatttekjur minnka.“
Þetta er tóm vitleysa sem á sér engar stoðir í raunveruleikanum. Ríkt siðlaust fólk fer með fjármagn sitt annað þrátt fyrir að fjármagnstekjuskattur sé mun lægri en venjulegur tekjuskattur, bara ef það kemst upp með það. Eins og dæmin sanna.
Helstu skattsvikararnir eru þeir sem reyna að komast hjá því að borga lágan fjármagnstekjuskatt en ekki venjulegt launafólk. Af hverju spyrja hægrimenn aldrei af hverju venjulegt launafólk flýi ekki í sama mæli vegna þess að það borgar skatta?
Fyrirtæki og einstaklingar líta til margra atriða þegar kemur að ákvörðun um að vera áfram í einhverju landi eða fara eitthvert annað. Skattar hafa einhver áhrif en alls ekki síður hafa mikilvæg atriði eins og almenn menntun, öryggi, félagslegur- og pólitískur stöðugleiki, glæpatíðni og almenn félagsþjónusta áhrif.
Það vill enginn í raun búa í samfélagi þar sem mikil misskipting er til staðar, fátækt er mikil, fáfræði og menntunarleysi ríkjandi, glæpir tíðir og pólitísk ólga.
Þess vegna er jafnaðarstefnan mikilvæg, hvort sem hún kemur frá Pírötum, Samfylkingunni, Vinstri grænum eða öðrum sem skilja að hagur heildarinnar, samfélagið, skiptir meira máli en einkahagur og sérhagsmunir einstaklinga og fyrirtækja.
Skoða 3 athugasemdirFela athugasemdir
Það er rétt hjá þér, Sigurður Hólm, að enginn vill búa í samfélagi þar sem mikil misskipting er til staðar, fátækt mikil, fáfræði og menntunarleysi, glæpir og pólitísk ólga. Ekkert er af þessu í íslensku samfélagi nema helst pólitísk ólga, sem stafar helst frá skoðanabræðrum þínum, sem sífellt halda fram að hér sé allt í molum og misskipting meiri en annarsstaðar. Ef þessi hugmyndafræði svokallaðra jafnaðarmanna á Íslandi hefði nú verið ofan á væri íslenskt samfélag í molum, bæði efnahagslega og samfélagslega. Hár fjármagnstekjuskattur eykur ekki bara áhættuna á því að fjármagnið leiti annað heldur dregur úr sparnaði landsmanna, sem er mjög slæmt. Að einhverjir geymdu fé annarsstaðar fyrir hrun hafði meira með veika krónu að gera. Það þyðir ekki að vera í viðskiptum um allan heim með krónu í farteskinu.
Viðreisn mun sparka í XD liðið í næstunni og tími komin....frábært að fá Viðreisn og Pírata saman.
Fólk ætti nú að lesa kommentin á pistlinum hans Brynjars. Einn skoðanabróðir hans að nafni Gunnlaugur Bjarnason skrifar eftirfarandi:
Kreppan reyndist okkur vel í heilbrigðisgeiranum en það hefði mátt nýta hana mun betur í öðrum stofnunum ríkisins.



