Hoppa í efni

Það er dýrt að segja upp fólki

Sigurður Hólm Gunnarsson | 28.10.2026

Ég veit ekki hverjir hoppa af gleði yfir síendurteknum uppsögnum hjá Reykjavíkurborg. Ég vil örugga og öfluga velferðarþjónustu og borg sem leggur rækt við menningu og mannlíf, öllum íbúum til hagsældar.

Í gær fengu fimmtíu starfsmenn borgarinnar uppsagnarbréf. Þetta er þriðja uppsagnarhrinan frá því að nýr meirihluti tók við. Borgin segir að fækkunin beinist fyrst og fremst að miðlægri stjórnsýslu og eigi ekki að skerða daglega þjónustu við borgarbúa. Þetta er augljóslega kjaftæði. Þjónustan stendur ekki ein og sér, óháð fólkinu sem skipuleggur hana og styður við hana.

Auðvitað þarf að fara vel með almannafé. En mér finnst það galin hægrivilla að fækkun opinberra starfsmanna sé sjálfkrafa merki um betri rekstur. Það þarf að sýna fram á hvað sparast, hvað tapast og hvaða áhrif breytingarnar hafa á þjónustuna og starfsfólkið sem eftir situr.

Þetta er sérstaklega varhugavert þegar atvinnuleysi er meira en fyrir ári. Skráð atvinnuleysi var fjögur prósent í september, samanborið við þrjú og hálft prósent í sama mánuði í fyrra. Nú þegar er allt of margt hæft og vel menntað fólk án vinnu. Við þurfum að nýta krafta þess og þekkingu.

Þegar fólk missir vinnuna hverfur kostnaðurinn ekki þótt launaliður lækki hjá einum vinnuveitanda. Ef viðkomandi fær ekki annað starf minnka tekjurnar yfirleitt, skattgreiðslur dragast saman og minna verður til ráðstöfunar fyrir almenna neyslu. Á móti geta útgjöld vegna atvinnuleysisbóta og annars stuðnings aukist. Sparnaður á einum stað getur því að hluta orðið að kostnaði annars staðar í samfélaginu.

Og þá er mannlegi kostnaðurinn ótaldur.

Atvinnuleysi getur verið niðurdrepandi. Það getur grafið undan sjálfstrausti, tekið frá fólki daglega festu og látið því líða eins og kraftar þess og reynsla séu einskis metin. Láttu mig þekkja það.

Ég vil að borgin meti árangur sinn út frá þjónustunni sem hún veitir og lífsgæðunum sem hún stuðlar að. Fjöldi uppsagnarbréfa er enginn mælikvarði á velgengni.

Skrifa athugasemdLoka

Skrifa athugasemd

Netfangið birtist ekki. Málefnaleg umræða er vel þegin.

Nafn, netfang og IP-tala eru vistuð með athugasemdinni. Sjá persónuvernd.

Sjá einnig á Facebook

Um höfundinn

Sigurður Hólm Gunnarsson

Stofnaði Skoðun árið 1999, þegar vefurinn var meðal fyrstu vefrita á Íslandi. Hér skrifar hann greinar og hugleiðingar um stjórnmál, hugmyndafræði, heimspeki og menningu, í anda frjálslyndis og umburðarlyndis.

Allar greinar höfundar (835) →

Fleiri greinar sem tengjast: Heilsa og velferð

Stillingar vafrakaka

Nauðsynleg geymsla man valið þitt. Prófílmyndir og utanaðkomandi myndir falla undir virkni; myndbönd og samfélagsmiðlaefni undir markaðssetningu og innfellingar. Independent Analytics mælir heimsóknir á vefþjóninum án vafrakaka og er aðskilið frá þessum flokkum.