Mér finnst það vera skylda mín að tjá mig aðeins um andleg veikindi og heilbrigðiskerfið hér á Íslandi. Í einu ríkasta landi heims býr almenningur við heilbrigðiskerfi sem er að hruni komið og gjaldtöku sem margir ráða ekki við. Á þetta ekki síst við um geðheilbrigðiskerfið. Í sama landi búa sakfelldir útrásarvíkingar sem enn eiga milljarðana sína, stórfyrirtæki stórgræða á auðlindum landsins og ríkir ráðamenn geyma peningana sína í skattaskjólum. Mér er ofboðið.
Eins og svo margir glími ég við veikindi. Andleg veikindi. Þjáist af þunglyndi, kvíðaröskun og ofsakvíða. Almennt reyni ég að tala sem minnst um þessi veikindi mín opinberlega þar sem viðbrögðin eru oft leiðinleg. Sumir bregðast við með því að tala um tilfinningaklám og athyglissýki. Því vil ég segja ykkur strax að ég hef enga sérstaka ánægju af því að segja frá því opinberlega að ég sé andlega veikur. Ég hef heldur ekki nokkurn áhuga á vorkunn eða athygli.
Svo veit ég fyrir víst að opinská umræða um andleg veikindi getur haft áhrif á möguleika þeirra sem tjá sig til að fá eða halda vinnu. Í öllu fordómaleysinu sem margir þykjast búa yfir leynast miklir fordómar gagnvart fólki sem er veikt á geði. Enn er til fólk sem kallar þunglyndi og kvíða aumingjaskap sem fólk eigi bara að „hrista af sér“, „horfa á björtu hliðarnar“ eða „drulla sér í ræktina.“
Ég er gæfuríkur maður. Ég á yndislega fjölskyldu og vini sem styðja mig og veita mér gleði. Ég er í ágætri vinnu og konan mín líka. Kostnaðurinn sem til fellur vegna veikinda minna er mér þó nánast um megn. Sérstaklega undanfarna mánuði þar sem ég hef verið í fæðingarorlofi og haft töluvert minna á milli handanna.
Í veikindum mínum hef ég hitt heimilislækni, geðlækna og sálfræðinga. Það kostar töluverða peninga. Ég þarf líka að taka nokkur lyf að staðaldri og þau kosta sitt.
Nú nýlega gaf geðlæknirinn minn mér skýr tilmæli. Hann útskýrði að minn sjúkdómur væri það sem sumir kalla „krabbamein hugans“ sem væri illviðráðanlegur.
Það sem skiptir máli er að geðlæknirinn minn sagði mér að það þyrfti stífa meðferð í langan tíma til að bæta ástand mitt.
Í fyrsta lagi þyrfti ég að hitta geðlækni á um 6 vikna fresti (kostar mig um 10 til 12 þúsund skiptið, þegar búið er að draga frá hlutdeild sjúkratrygginga).
Í öðru lagi yrði ég að taka lyfin mín reglulega og jafnvel auka skammtinn.
Í þriðja lagi yrði ég að hitta sálfræðing reglulega yfir langt tímabil. Helst í hverri viku í að minnsta kosti ár og jafnvel lengur.
„Ég veit að þetta er dýrt en þú verður bara að „splæsa“ þessu á þig“, – sagði læknirinn fullur skilnings.
Það eru orð að sönnu að sálfræðiþjónusta sé dýr því skiptið hjá sálfræðingi kostar um 14 þúsund krónur. Ef ég þarf að fara fjórum sinnum í mánuði þá gerir það a.m.k. 56 þúsund hvern mánuð. Varlega áætlað borga ég 15 þúsund á mánuði í lækni og lyf þannig að mánaðarlegur kostnaður fyrir að vera andlega veikur er 71 þúsund eða um 852 þúsund krónur á ári. Í mínu tilfelli eru það ekki „nema“ um tvenn útborguð mánaðarlaun en mun meira fyrir allan þann fjölda sem er lægra launaður en ég. Reyndar er ég í fæðingarorlofi núna og fæ þá um 270 þúsund krónur á mánuði þannig að áætlaður árlegur heilbrigðiskostnaður er rúmlega þrjú mánaðarlaun frá fæðingarorlofssjóði.
Svo þarf ég eins og aðrir að borga af húsnæði, mat og klæði fyrir mig og börnin og svo þarf víst að gera við nokkrar tennur en það verður að bíða betri tíma (a.m.k. þar til síðustu viðgerðir hafa verið greiddar með raðgreiðslum). Í þessum mánuði þurfti ég að velja á milli þess að fara til læknis og borga LÍN.
Samkvæmt skýrum klínískum leiðbeiningum Landspítalans um hvernig eigi að haga verklagi „við meðferð sjúklinga með algengar geðraskanir, svo sem almenna kvíðaröskun og skelfingarkvíða“ þá á fyrst og fremst að bjóða upp á sálfræðiviðtöl í bland við lyfjameðferð.
Þrátt fyrir þessar skýru klínísku leiðbeiningar er sálfræðiþjónusta alls ekki niðurgreidd af sjúkratryggingum. Við eigum ekki „rétt“ á heilbrigðisþjónustu ef við erum andlega veik eða með tannpínu.
Tekið skal fram að stéttarfélög greiða oft niður sálfræðikostnað. Styrktarsjóður BSRB greiðir þannig að hámarki 5000 krónur í 15 skipti á ári eða samtals 75.000. Í mínu tilfelli myndi árlegur kostnaður því lækka úr 852 þúsund í 777 þúsund krónur. En þá þarf ég líka að betla peninga af stéttarfélaginu mínu og útskýra fyrir óskyldu fólki að ég þurfi á sálfræðiþjónustu að halda. Mér finnst það niðurlægjandi.
Niðurstaðan er sú að margir hafa miklar fjárhagsáhyggjur ofan á þá kvöl að berjast við andleg veikindi. Of margir leita sér ekki viðeigandi aðstoðar vegna þess að þeir hafa ekki efni á því. Þetta veit ég fyrir víst og það er gjörsamlega óviðunandi ástand.
Ég kalla eftir viðbrögðum þeirra sem starfa í stjórnmálum. Ætlum við að byggja upp mannúðlegt samfélag þar sem heilbrigðisþjónusta er gjaldfrjáls eða er ætlunin að halda áfram Albaníustefnunni í geðheilbrigðismálum þar sem aðeins hinir ríku geta auðveldlega fengið bestu mögulegu þjónustu (gullpakkann fræga) á meðan við hin verðum að sætta okkur við takmarkaða þjónustu og fjárhagsáhyggjur?
Sigurður Hólm Gunnarsson
Sjá einnig:
Viðtal við Sigurð Hólm og Hrund Þrándardóttur um geðheilbrigðismál í Morgunútvarpi Rásar 2 þann 8. ágúst 2016:
- Umfjöllun í Morgunútvarpi Rásar 2 þann 8. ágúst 2016
- Samtal SHG við Brynjar Níelsson, þingmann í Harmageddon þann 10. ágúst 2016
- Geðsjúkt heilbrigðiskerfi (skodun.is)
Skoða 20 athugasemdirFela athugasemdir
Frábær grein hjá þér Siggi og gangi þér sem allra best.
Gangi þér vel. Er einnig veik af þunglyndi en sem betur fer ekki eins veik og þú.
Takk fyrir þessi skrif og beinar upplýsingar um kostnað. Ég hef áhuga á þessum málum og hef fylgst talsvert með því sem Steindór Erlingsson hefur skrifað. Þar að auki er ég lyfjafræðingur og kannast við málin frá þeirri hlið. Það sem ég þekki til innan eigin fjölskyldu er innan þeirra marka að hreyfing og athafnasemi hefur virkað en þó hefur sálfræðimeðferð eitthvað verið prófuð. Sem sagt geðheilsan innan heilbrigðismarka (að öllum líkindum). En ég verð að segja frá því úr því ég er að ræða þessi mál að þegar ég var barn var faðir minn stundum veikur, einkum á veturna. Þá kom Ragnar læknir við daglega til að sprauta hann, lækningin var sem sagt: B- og C-vítamín meðferð.
Einstaklega málefnalega skrifað um leið snert er á svo mörgum mikilvægum og viðkvæmum strengjum.
Það er alveg satt þetta er svona
Siggi mundu þú ert aldrei einn. Við gengum í gegnum svipaðan pakka í skóla.
Meiri segja vorum við saman í skóla. Ég man alveg skítinn sem við gengum í gegnum á þessum tíma.
Ég hef gengið þennan veg sem er þunglyndi og kvíði sökum þess sem við urðum fyrir.
Ég er á betri stað í dag en samt er alltaf stutt í að maður detti í þessar gömlu tilfinningar.
Við verðum bara að gera þetta eins og allir í AA og fleiri stöðum. Einn dag í einu.Svo sorglegt að þetta skuli vera svona hjá ríkri þjóð Við verðum að breyta þessu
GÓÐ GREIN OG ÞÖRF ! Takk
Mikið rétt. Geðheilsan er jafnan síðast á blaði í uppbyggingu heilbrigðiskerfisins. Það er eins og heilinn sé ekki líffæri. Í áformum um Nýjan Landspítala eru engin plön um stækkun á geðspítalanum. Gamla geðdeildin var reist síðust (utan Barnaspítalans) á lóðinni. Það er hneyksli að sálfræðingar skuli ekki vera hluti af almenna heilbrigðiskerfinu og 1-3 á hverri heilsugæslustöð. Það væri gott stefnumið fyrir stjórnmálaflokka.
Góð grein hjá þér. Eitt er enn sem geðfatlaðir geta ekki fengið og það er að þeir fá ekki liðsmann til að fara með t.d. í bíó eða aðra skemmtun þó ekki væri nema 2 daga í mánuði. En margir með aðra fötlun, fá liðsmanneskju, á launum frá borginni eða ríkinu.
Ég hringdi á stofu geðlæknis fyrir nokkrum árum og spurði hvort ég gæti fengið tíma hjá geðlækninum.
Svarið var að ég yrði að fá tilvísun frá heimilislækni. Ég spurði heimilislækni minn hvort hann gæti gefið með tilvísun. Hann fékk mig til að svara spurningalista en kvaðst ekki geta séð að ég ætti við geðræn vandamál að stríða og það væri algjör óþarfi að vísa mér til geðlæknis.
Alla mína hunds- og kattatíð hef ég þá sparað samfélaginu óhemju upphæðir miðað við útreikninga nafna míns, enda tekið öllum áföllum með æðruleysi og í besta falli kæruleysi ef mikið lá við.Frábær grein! Það þarf róttækar breytingar sem við sem samfélag þurfum að knýja fram í sameiningu.
Takk fyrir að oppna þessa umræðu .
Takk fyrir þessa grein Sigurður.!
Orð í tíma töluð.
Frábær grein hjá þér. Komin tími á að opna umræðu um þessa sjúkdóma
Ég hafði líka átt við mjög alvarlegt þunglyndi og kvíða að stríða alveg frá því í leikskóla út af mjög erfiðum og frekum þroskaþjálfa sem hafði dáleitt mig með fasistaáróðri um ekki neitt, ásamt því að reyna að koma mér í ýmis leiðindi í gegnum fólkið í kringum mig, alveg þangað til honum var endanlega lokað af fyrir nokkrum árum.
Ég er miklu betri núna, að hluta til þökk lyfja sem ég hef verið á.Þú þarft að endurskoða niðurlægingar hugtakið, þetta eru réttindi sem þú hefur unnið þér inn með greiðslum í stéttarfélagið. Hins vegar má deila um hvort velferðarþjóðfélag eins og okkar eigi að velta skyldum sínum yfir á stéttarfélög og lífeyrissjóði. Allar greiðslur frá ríkinu skerðast um leið og þú færð eitthvað sem þú hefur unnið þér inn eða safnað þér fyrir.
Ótrúlega ómannúðlegt heilbrigðiskerfi og illúðlegt og niðurlægjandi net sem fólk fellur í þegar það missir heilsuna.



