Hoppa í efni

Hagvaxtarklám

Sigurður Hólm Gunnarsson | 14.05.2013

Hagvaxtarklám er sú ranghugmynd að hagvöxtur sé helsta  og jafnvel eina forsenda velsældar og hamingju.

Búið er að er að setja á laggirnar Samráðsvettvang um aukna hagsæld . En vettvangurinn „telur að hagvöxtur sé grundvöllur góðra lífskjara á Íslands.“ [sic] Á þeim vettvangi er því haldið fram að hagvöxtur sé nauðsynlegur til að tryggja öflugt velferðarkerfi, heilbrigðisþjónustu og hátt menntunarstig.

Ég ætla að leyfa mér að mótmæla þessari einföldun. Margt bendir nefnilega til þess að þessu sé öfugt farið. Það er að öflugt velferðarkerfi og góð grunnþjónusta fyrir alla auki líkurnar á hagvexti.

Oftrú á hagvöxt sem einhvers konar forsendu fyrir lífsgæðum er ekki mjög skynsamleg. Bæði vegna þess að það er alls ekki ljóst hvert orsakasamhengið er og líka vegna þess að hagvöxtur einn og sér segir lítið til um „góð lífskjör“ almennings.  Hagvöxtur fjallar um aukna framleiðslugetu þjóðar en segir okkur ekkert um tekjuskiptingu, aðgang fólks að grunnþjónustu, ástandi umhverfisins eða yfirleitt um hamingju fólks.

Nú finnst mér reyndar ágætt að hópur fólks komi saman og fjalli um hvernig má auka hagsæld á Íslandi. Ég vara einfaldlega við því að of mikil áhersla sé lögð á hagvöxt.

Mikill hagvöxtur kann að líta vel út á blaði en ef fórnarkostnaðurinn er mikil tekjuskipting, „hagræðing“ í opinberri þjónustu sem bitnar á venjulegu fólki og eyðilegging á umhverfi er hann lítils virði.

Skoða 2 athugasemdirFela athugasemdir
  1. Jón Skafti Gestsson 14. maí 2013 · á Facebook

    "Ég ætla að leyfa mér að mótmæla þessari einföldun. Margt bendir nefnilega til þess að þessu sé öfugt farið. Það er að öflugt velferðarkerfi og góð grunnþjónusta fyrir alla auki líkurnar á hagvexti."

    Ég ætla að leyfa mér að mótmæla þessari einföldun. Margt bendirnefnilega til þess að hér sé um gagnkvæmt styrkjandi þætti að ræða.

  2. Pétur Óli Jónsson 14. maí 2013 · á Facebook

    Það er nefnilega vandamálið að almennt er talað eins og hagvöxtur sé eina breytan sem skipti máli. Hún er ein af breytunum sem skiptir máli. Margar aðrar breytur eiga heima í jöfnuni um velsæld. Gæði er stór breyta sem vantar inn í heildardæmið. Öflugt velferðakerfi er hluti af gæðunum.

Skrifa athugasemd

Netfangið birtist ekki. Málefnaleg umræða er vel þegin.

Nafn, netfang og IP-tala eru vistuð með athugasemdinni. Sjá persónuvernd.

Skrifa athugasemd

Um höfundinn

Sigurður Hólm Gunnarsson

Stofnaði Skoðun árið 1999, þegar vefurinn var meðal fyrstu vefrita á Íslandi. Hér skrifar hann greinar og hugleiðingar um stjórnmál, hugmyndafræði, heimspeki og menningu, í anda frjálslyndis og umburðarlyndis.

Allar greinar höfundar (839) →

Fleiri greinar sem tengjast: Efnahagur og atvinnulíf

Stillingar vafrakaka

Nauðsynleg geymsla man valið þitt. Prófílmyndir og utanaðkomandi myndir falla undir virkni; myndbönd og samfélagsmiðlaefni undir markaðssetningu og innfellingar. Independent Analytics mælir heimsóknir á vefþjóninum án vafrakaka og er aðskilið frá þessum flokkum.