Ég og Jóhann Björnsson, kennari og heimspekingur, fórum í tvö viðtöl á Rás 2 í vikunni og fjölluðum um Siðmennt (Morgunútvarpið – Síðdegisútvarpið). Siðmennt – félag siðrænna húmanista á Íslandi er nú skráð lífsskoðunarfélag, það fyrsta sinna tegundar á Íslandi. Nú geta þeir sem telja sig ekki eiga heima í trúfélagi skráð sig í Siðmennt hjá Þjóðskrá og styrkt þannig starfsemi félagsins. Siðmennt er veraldlegt lífsskoðunarfélag sem berst fyrir fullu trúfrelsi og býður upp á persónulegar og veraldlegar athafnir eins og giftingar, útfarir, nafngiftir og fermingar.
Nánar:
- Viðtal við Jóhann Björnsson og Sigurð Hólm Gunnarsson í Morgunútvarpi Rásar 2 (10. maí 2013).
- Viðtal við Jóhann Björnsson og Sigurð Hólm Gunnarsson í Síðdegisútvarpi Rásar 2 (8. maí 2013).
- Skráðu þig í Siðmennt hjá Þjóðskrá! (sidmennt.is)
Skoða 1 athugasemdFela athugasemdir