Hoppa í efni

“Vinstrivilla” skekur Heimdall

Sigurður Hólm Gunnarsson | 16.08.2004

Síðastliðinn laugardag átti sér stað sá sögulegi atburður að hægrikratar náðu völdum í Heimdalli, félagi ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík. En eins og þeir sem hafa fylgst með íslenskum stjórnmálum vita hefur Heimdallur lengi vel verið sterkasta vígi íslenskra frjálshyggjumanna. Ekki lengur. Bolli Skúlason Thoroddsen, nýkjörinn formaður Heimdallar, er eins og svo margir félagar hans á deiglan.com, hægrikrati ekki frjálshyggjumaður.


Ólíkt fyrirrennurum sínum virðist Bolla vera umhugað um að styrkja velferðarkerfið til að taka á félagslegum vandamálum eins og fátækt og atvinnuleysi. Slíkar hugmyndir hafa ekki heyrst frá forustu Heimdallar um langa hríð, ef þá nokkurn tímann.

Í grein um bág kjör atvinnulausra, aldraðra og öryrkja sem Bolli skrifaði (ásamt Jóhönnu Sigurðardóttur?) á Deiglan.com fyrir nokkru segir hann:

“Er þetta [bæturna] nóg til að lifa mannsæmandi lífi, einkum ef fólk sem er á leigumarkaði, með húsnæðisskuldir eða hefur börn á sínu framfæri? Er hægt að gera betur við þennan stóra hóp?”

Áfram segir jafnaðarmaðurinn:

“Sjálfstæðisflokkurinn hefur að margra mati sýnt þessum málaflokki lítinn áhuga. Ungur sjálfstæðismaður hélt því fram í blaðagrein nýverið að fátækt á Íslandi sé einfaldlega sjálfskaparvíti. Fólk geri ekki það sem gera þarf til að komst betur af. Þetta er hugsun sem er varhugaverð. Við sjálfstæðismenn eigum að ganga út frá því að fólk vilji komast á réttan kjöl. Annars erum við einfaldlega að afskrifa of stóran hluta þjóðarinnar.”

Það kemur því varla á óvart að frjálshyggjumenn bæði innan og utan Heimdalls uppnefna Bolla og skoðanabræður hans iðulega miðjumoðara og kommúnista. Í hörðustu árásunum eru þeir jafnvel kallaðir samfylkingarmenn. Svo mikil er heiftin.

Spennandi verður að fylgjast með hvað frjálshyggjumenn gera nú þegar “vinstrivilla” skekur Heimdall sem aldrei fyrr. Það kæmi ekki á óvart ef félagsmönnum í Frjálshyggjufélaginu myndi skyndilega fjölga.

Skoða 4 athugasemdirFela athugasemdir
  1. Rúnar Þór 17. ágúst 2004

    Kæri Sigurður Hólm. Ég get ekki sagt að ég sé frjálshyggjumaður þó ég skilgreini mig til hægri í pólitík. Ég aðhyllist frekar mildari skoðanir en þeir sem hafa ráðið í Heimdalli undanfarin ár. Ég geri mér samt grein fyrir því að það er bölvuð kratastefna sem fylgir nýjum formanni félagsins, eins og þú fullyrðir, og yfirbragð Heimdallar mun breytast. Ég hef verið fylgjandi því að Heimdallur haldi úti hörðum frjálshyggjuáróðri því enginn annar hefur gert það. Það þarf að færa miðjuna. Að breyta Heimdalli í eitthvað skynsemis miðjumoðs félag, þar sem engin hugmyndafræði fær að þrífast, heldur alltaf sagt að við verðum að "horfa á heiminn eins og hann er", eru mistök. Stór mistök. Það er vont fyrir Sjálfstæðisflokkinn og ungliðahreyfingu hans. Málið er nefnilega að vinstri menn hafa alltaf þrifist innan flokksins en frjálshyggjumenn munu núna eiga það erfitt.

  2. Rúnar Bjarnason 4. september 2004

    Já það er ekki hægt að leyna því að bragurinn á Heimdalli hefur tekið stakkarskiptum eftir stjórnarskiptin. Mann rekur í rogastans að sjá greinar á frelsi.is sem mæla með kynjakvótum og öðru eins. Eru þeir komnir til vinstri við Sigurð Hólm? Svei mér þá.

    Frjálshyggjumönnum er þá víst aðeins eitt vígið heilagt, en það er Frjálshyggjufélagið. Það er ekkert nema gott um það að segja að frjálshyggjumenn komi saman frekar en að vera að kroppa í klofið á sjálfstæðisapparatinu úr einhverjum hliðarvasa.

    Svo er auðvitað annað ráð að hreinlega hætta að standa í þessari pólitík. Enda bölvuð tík.

  3. Sigurður Hólm Gunnarsson 4. september 2004

    “Eru þeir komnir til vinstri við Sigurð Hólm? Svei mér þá.”

    Hefur ekki Heimdallur alltaf verið til vinstri við mig? 🙂

  4. Hjörtur J. 5. september 2004

    Tja, þess má geta að a.m.k. samkvæmt sumum formúlum er frjálshyggjan ekkert endilega til hægri þó ýmsir innan Heimdallar hafi viljað meina að hún sé hin eina sanna hægristefna. Menn geta hæglega verið einhvers konar vinstrisinnaðir frjálshyggjumenn. T.d. er ekki annað hægt að lesa út úr þeirri formúlu sem stuðst er við í þessu prófi á netinu:

    http://www.self-gov.org/quiz.html

    ... og eru það þó frjálshyggjumenn sem standa að þessari síðu 🙂 Ef einhver stefna er virkilega hægrisinnuð er það sennilega íhaldið. En svo er þessi hægri-vinstri mækikvarði auðvitað frekar ónámkvæmur eins og allir þekkja.

    Skemmtilegt próf annars, gaman að taka það. Einfalt en að margra mati merkilega áreiðanlegt.

Skrifa athugasemd

Netfangið birtist ekki. Málefnaleg umræða er vel þegin.

Nafn, netfang og IP-tala eru vistuð með athugasemdinni. Sjá persónuvernd.

Skrifa athugasemd

Um höfundinn

Sigurður Hólm Gunnarsson

Stofnaði Skoðun árið 1999, þegar vefurinn var meðal fyrstu vefrita á Íslandi. Hér skrifar hann greinar og hugleiðingar um stjórnmál, hugmyndafræði, heimspeki og menningu, í anda frjálslyndis og umburðarlyndis.

Allar greinar höfundar (839) →

Fleiri greinar sem tengjast: Stjórnmál og lýðræði

Stillingar vafrakaka

Nauðsynleg geymsla man valið þitt. Prófílmyndir og utanaðkomandi myndir falla undir virkni; myndbönd og samfélagsmiðlaefni undir markaðssetningu og innfellingar. Independent Analytics mælir heimsóknir á vefþjóninum án vafrakaka og er aðskilið frá þessum flokkum.