Hoppa í efni

Ríkisskipuð nefnd segir trúfélagi fyrir verkum

Sigurður Hólm Gunnarsson | 06.09.2004

“Nefnd um réttarstöðu samkynhneigðra sem forsætisráðherra skipaði fyrir ári hvetur þjóðkirkjuna til að breyta afstöðu sinni gagnvart hjónaböndum samkynhneigðra þannig að samkynhneigðir geti fengið kirkjulega vígslu eins og annað fólk.” *

Það er eitthvað kjánalegt, og um leið afar óviðeigandi, við að nefnd á vegum ríkisins skuli taka upp á því að segja hinni Evangelísku lútersku kirkju fyrir verkum. Samkvæmt Biblíunni er samkynhneigð synd og það er út í hött að ríkið skipti sér af því hvernig lúterstrúarmenn iðka og boða trú sína.

Verksvið hins opinbera á að vera að tryggja að allir séu jafnir fyrir lögum. Þess vegna er ólíðandi að kynhneigð fólks hafi áhrif á lagaleg réttindi þess. Einkalíf og fjölskylduform einstaklinga kemur stjórnvöldum ekki við. Hjónaband er samningur tveggja (eða fleiri?) fullorðinna einstaklinga og hafa stjórnvöld engan rétt á því mismuna fólki eftir því hvernig fjölskylduform það kýs að búa við.

Hér áður tíðkaðist það að banna einstaklingum af ólíkum uppruna að ganga í hjónaband og núna er réttarstaða fólks mismunandi eftir því hvaða kynhneigðar það er. Í gamla daga var það “ógn við samfélagið” og “kristilegt siðferði” ef “hvítur” maður giftist “svartri” konu eða öfugt. Í dag vilja sumir meina að heimsendir sé í nánd ef samkynhneigðir fá sömu lagalegu stöðu og “venjulegt” gagnkynhneigt fólk.

Í réttlátu samfélagi eiga ekki að vera til sérlög fyrir svarta, hvíta, gula, ljósbrúna, freknótta, gagnkynhneigða, samkynhneigða eða konur og karla. Enda skulu allir “vera jafnir fyrir lögum og njóta mannréttinda án tillits til kynferðis, trúarbragða, skoðana, þjóðernisuppruna, kynþáttar, litarháttar, efnahags, ætternis og stöðu að öðru leyti.” **

Jafnrétti = aðskilnaður ríkis og kirkju
Vegna þess að við búum ennþá við það miðaldarfyrirkomulag að hafa sérstaka ríkiskirkju gera margir ráð fyrir því að yfirvöld hafi einhvern rétt á því að skipa Þjóðkirkjunni fyrir. Þetta er misskilningur. Ef stjórnmálamenn vilja berjast fyrir jafnrétti og réttlæti er eðlilegast að aðskilja ríki og kirkju, tryggja öllum jafnan lagalegan rétt (m.a. til sambúðar, ættleiðingar o.s.frv). og um leið tryggja rétt trúfélaga til að boða hvaða trú sem þeim sýnist.

Hin Evangelíska lúterska kirkja hlýtur að hafa fullan rétt á því að mismuna fólki eins og henni sýnist. Ef einstaka meðlimir lútersku kirkjunnar eru eitthvað ósáttir við þær trúarkenningar sem kirkjan stendur fyrir geta þeir hinir sömu einfaldlega sagt sig úr kirkjunni og endurskoðað trúarsannfæringu sína.

*Samkynhneigðir fái vígslu prests - Bylgjan 6. september 2004
**Stjórnarskrá lýðveldisins Íslands

Skoða 12 athugasemdirFela athugasemdir
  1. Ágúst Borgþór Sverrisson 7. september 2004

    Mikið er ég sammála þessu. Samkynhneigðir eiga annars vegar að fá öll þau réttindi sem gagnkynhneigðir hafa þar sem það er í ríkisins valdi: ættleiðingar, sambúðarform osfrv. - En kirkjan er trúfélag og á að ráða sér algjörlega sjálf.

  2. Jens Ívar 10. september 2004

    Lútherska kirkjan er ekki sjálfseignarstofnun. Og þar sem ríkið borgar stóra hlutan af kostnaði við hana og
    62. gr. Hin evangeliska lúterska kirkja skal vera þjóðkirkja á Íslandi, og skal ríkisvaldið að því leyti styðja hana og vernda.

    Þannig að það hlýtur að segja sitt sjálft að ríkisvaldið getur alveg gefið ráðleggingar til þjóðkirkjunnar.

    Þjóðkirkjan predikar ekki að samkynhneigð sé synd.

    En punkturinn um hvort að það ætti að vera á valdi ríkisins að halda úti svona kirkju er auðvitað allt annað mál.

  3. Sigurður Hólm Gunnarsson 12. september 2004

    Það segir sig ekki sjálft að ríkisvaldið geti sagt trúfélagi fyrir verkum. Jafnvel þó ríkið borgi flesta reikninga ríkiskirkjunnar. Helstu talsmenn kirkjunnar hafa ítrekað haldið því fram að ríki og kirkja séu í raun og veru aðskilin þar sem að trúfélagið stjórnar sínu innra starfi algerlega sjálft. En það er svosem aukaatriði. Það er augljóslega afar ólýðræðislegt að eitt ákveðið trúfélag sé sérstaklega tengt stjórnvöldum og njóti sérstakrar verndar.

    Svo er það reyndar rangt hjá þér þegar þú segir að Þjóðkirkjan prediki ekki að samkynhneigð sé synd. Hún gerir það víst. Biskup og prestar hafa látið þau orð falla að samkynhneigð sé synd, en þó ekki alvarlegri syndir en aðrar (eins og þjófnaður og morð). Syndir eru víst jafnalvarlegar. Þjóðkirkjuprestar hafa margoft sagt opinberlega að samkynhneigð sé synd. Biskup og/eða Þjóðkirkjan hefur hins vegar ekki viljað lýsa því sérstaklega yfir að samkynhneigð sé ekki synd.

  4. Jens Ívar 15. september 2004

    Þarna erum við ósammála um þetta málefni, það er svo sem í lagi en mig langar að reyna útskýra mitt mál aðeins betur.

    Þjóðkirkjan er kirkja allra landsmanna og það er hálf fáránlegt að svona kirkja sem starfar í krafti ríkistjórnarinnar útiloki vissa einstaklinga úr kirkjustarfi. Ríkið sem á að vera að starfa í krafti fólksins vill auðvitað að þjóðkirkjan geri það líka. Að mínu áliti er það mjög skiljanlegt að ríkið bendi kirkjunni á það að útiloka ekki vissan hluta af fólki landsins.

    Það getur vel verið að vissir prestar lýsi því yfir að samkynhneigð er synd en þjóðkirkjan gæti aldrei gert það og ef hún myndi gera það þá væri allar forsendur fyrir þjóðkirkjunni brostnar. En auðvitað geta starfsmenn kirkjunnar lýst yfir skoðun sinni. Það finnst mér eðlilegt.

  5. Sigurður Hólm Gunnarsson 15. september 2004

    Ekki er ég svo viss um að við séum ósammála. Ég held einfaldlega að þú áttir þig ekki á muninum á trúfélagi og ríkisstofnun. Trúfélagið “Hin evangelíska lúterska kirkja” aðhyllist ákveðnar kreddur sem koma ríkisvaldinu ekkert við. Má þar nefna trúna á:

    1) að Jesú hafi verið sonur Guðs sem dó fyrir syndir mannanna.
    2) að Guð sé skapari himins og jarðar.
    3) að það sé líf eftir dauðann.
    4) að þeir sem trúa á Jesú komist til himna, aðrir ekki.
    5) að samkynhneigð sé dauðasynd.

    Það er algjörlega út í hött að ríkisskipuð nefnd segi trúfélagi fyrir verkum. Á Þjóðkirkjan að gefa út þá yfirlýsingu að þeir sem trúa ekki á Guð og tilvist Jesú komist samt til himna? Nú er Þjóðkirkjan “kirkja allra landsmanna”, verður hún þá ekki að taka undir skoðanir allra? Nei auðvitað ekki. Að sama skapi er það fáránlegt að reyna að neyða trúfélag sem álítur samkynhneigð vera synd til að “blessa” og viðurkenna sambönd samkynhneigðra.

    Sem betur fer er enginn neyddur til að vera í Þjóðkirkjunni eða öðrum trúfélögum hér á landi. Því eiga þeir sem telja sig ekki vera sammála trúarkreddum Þjóðkirkjunnar einfaldlega að segja sig úr kirkjunni. Einfalt mál.

    Svo vil ég ítreka að biskup og valdamenn innan kirkjunnar hafa einfaldlega neitað að gefa út þá yfirlýsingu að samkynhneigð sé ekki synd. Þeir vita að þeir geta ekki gefið út slíka yfirlýsingu enda er morgunljóst að samkvæmt biblíunni er samkynhneigð synd. Í nafni rétthugsunar hafa sumir prestar sagt að þó Guð hati syndina (samkynhneigð) þá elski hann syndarana (hina samkynhneigðu). Aðrir hafa sagt að samkynhneigð sé ekki verri synd en aðrar (samkynhneigð er semsagt hvorki betri né verri synd en morð).

    Samkvæmt Þjóðkirkjunni er samkynhneigð semsagt synd. Þetta er staðreynd en ekki skoðanaágreiningur okkar á milli Jens.

  6. Svavar A. Jónsson 16. september 2004

    Kæri Sigurður Hólm!

    Það er ekki rétt hjá þér að Þjóðkirkjan telji samkynhneigð dauðasynd, eins og þú fullyrðir. Þjóðkirkjan hefur engar kenningar um svonefndar dauðasyndir. Það er heldur ekki rétt hjá þér að það sé "morgunljóst" eins og þú orðar það, að samkynhneigð sé synd samkvæmt Biblíunni.

    Hitt er rétt að mikill ágreiningur er innan Þjóðkirkjunnar um hvernig eigi að taka á málefnum samkynhneigðra. Ég er þeirrar skoðunar að ein leið til þess sé sú að eyða fordómum í þeirra garð. Það gerum við meðal annars með fræðslu. Þeir sem segja það staðreynd að samkynhneigð sé dauðasynd í kirkjunni eru að minni hyggju að kynda undir fordómum í garð samkynhneigðra.

    Kveðja,

    Svavar A. Jónsson

  7. Sigurður Hólm Gunnarsson 16. september 2004

    Til Svavars
    Mér sýnist þú vera að reyna að snúa staðreyndum á haus. Það er andstaða og/eða afstöðuleysi Þjóðkirkjunnar til samkynhneigðra sem kyndir undir fordóma gagnvart þeim. Eins og áður segir hafa forsvarsmenn kirkjunnar verið beðnir að lýsa því sérstaklega yfir að samkynhneigð sé ekki synd en þeir hafa ekki viljað gera það.

    Í grein minni “Hver er opinber afstaða Þjóðkirkjunnar?” sagði ég:

    “Siðleysið í því að segja ekki neitt
    Í ljósi þess að nú á að efla “kristin gildi” hér á landi þá krefst ég þess að biskup Íslands og Þjóðkirkjan gefi út skýra og auðskiljanlega skriflega yfirlýsingu um hvað nákvæmlega er átt við með kristnum gildum og hver opinber afstaða þeirra til samkynhneigðra sé. Þögn kirkjunnar (eða afar óljóst orðalag) í þessum málum og það að froðupredikara eins og Gunnari í Krossinum sé yfirleitt boðið að taka þátt í að predika yfir þjóðinni á kristnitökuhátíðinni á kostnað skattgreiðenda er að mínu mati skýrt dæmi um lágt siðferðisþrek kirkjunnar.”

    Forysta kirkjunnar þegir á meðan þjónar hennar láta orð eins og þessi falla:

    “En af áðurgreindum ástæðum mun kristin kirkja aldrei taka upp hjónavígslu samkynhneigðra, því að þá hættir hún að vera kirkja sem byggir á orðum Jesú Krists.”

    Varðandi notkun mína á orðinu “dauðasynd” verð ég að viðurkenna að ég er ekki nógu vel að mér í fordæmingafræðum trúarbragða til að átta mig á muninum á orðunum synd og dauðasynd. Hins vegar hef ég heyrt presta tala bæði um synd og dauðasynd þegar kemur að málefnum samkynhneigðra.

  8. Svavar A. Jónsson 16. september 2004

    Ég ítreka að þeir sem boða að samkynhneigð sé dauðasynd í kirkjunni eru að kynda undir fordómum í garð samkynhneigðra.

    Í greinargerð nefndar um samkynhneigð og kirkju sem skipuð var af kirkjuráði og biskupi Íslands árið 1996 segir:

    "Í daglega lífinu bendir allt á gagnkynhneigt líferni sem hið eðlilega og við þær aðstæður lifa samkynhneigðir, sem aðeins með því að lifa í samræmi við eigin hneigð geta lifað heilu og fullríku lífi. Lausnin á þessum vanda má ekki fela í sér að samkynhneigðir séu grasrótarhreyfing eða þurfi að vera í felum. Þess vegna verður kirkjan að samþykkja parasambönd samkynhneigðra sem valkost þegar um er að ræða eðlislæga samkynhneigð og frjálst val tveggja fullveðja einstaklinga. Slíkt samþykki á að ná yfir manneskjuna sem heild, bæði kynhneigð hennar og lífsmáta." (Bls. 35)

    Svo mörg voru þau orð.

    Vinarkveðja,

    Svavar A. Jónsson

  9. Sigurður Hólm Gunnarsson 16. september 2004

    Sem betur fer er afstaða kirkjunnar til samkynhneigðar að breytast smá saman. Félagslegur þrýstingur neyðir trúfélög til að milda afstöðu sína smá saman. Áhugavert verður að fylgjast með því hvort, og þá hvernig, nefndarálit sem þessi hafa áhrif á opinbera afstöðu kirkjunnar.

    Markmiðið með þessari grein var hins vegar að benda á hvað það væri fáránlegt að ríkisskipuð nefnd skipti sér að innra starfi og kreddum kirkjunnar. Þjóðkirkjan á, rétt eins og önnur trúfélög, að hafa fullan rétt til þess að boða allar þær kreddur sem hún kýs.

  10. Vésteinn Valgarðsson 17. september 2004

    Undarleg þykir mér sú fullyrðing að þjóðkirkjan sé kirkja allra landsmanna. Hún er ekki mín kirkja. Ef þjóðkirkjunni væri skipt út fyrir einhvern annan skoðanahóp, t.d. Sjálfstæðisflokkinn, hvernig hljómaði þá þessi fullyrðing? Bjánalega mjög, eftir sem áður.

  11. Jens Ívar 20. september 2004

    Nei Siggi við erum ekki ósammála um skilgreininguna á trúfélagi og ríkisstofnun.

    En ég segi að hin lútherska þjóðkirkja sé ríkisstofnun. Þótt að kirkjan sjálf segi að hún sé sjálfstæð.. ég tek álíka mark á því og þegar landsími Íslands segir það sama.

    Þjóðkirkjan er auðvitað þannig stofnun að allir þegnar landsins geta leitað til hennar (þurfa þess ekki Vésteinn). Þá er auðvitað ekki þolanlegt fyrir stjórnendur landsins að kirkjan útiloki einhvern minnihlutahóp.

    En auðvitað gæti ríkiststjórnin aldrei sagt Krossinum, votta JPMóva o.fl. til verka.

    En þarna er kjarni málsins. Þú segir að þjóðkirkjan sé ekki ríkisstofnun.. ég segi að hún sé ríkisstofnun.

  12. Vésteinn Valgarðsson 22. september 2004

    Satt er að hver sem er getur leitað til Þjófkirkjunnar. Á sama hátt og hver sem er getur leitað til Sjálfstæðisflokkins. Kirkja getur ekki verið kirkja allra landsmanna því verulegur hluti landsmanna stendur utan við hana og trúir ekki því sem hún heldur fram.
    Hvernig getur maður "leitað til" trúfélags sem maður álítur galdra- og hjátrúarsöfnuð með fjárplógsívafi?

Skrifa athugasemd

Netfangið birtist ekki. Málefnaleg umræða er vel þegin.

Nafn, netfang og IP-tala eru vistuð með athugasemdinni. Sjá persónuvernd.

Skrifa athugasemd

Um höfundinn

Sigurður Hólm Gunnarsson

Stofnaði Skoðun árið 1999, þegar vefurinn var meðal fyrstu vefrita á Íslandi. Hér skrifar hann greinar og hugleiðingar um stjórnmál, hugmyndafræði, heimspeki og menningu, í anda frjálslyndis og umburðarlyndis.

Allar greinar höfundar (839) →

Fleiri greinar sem tengjast: Trú og veraldlegt samfélag

Stillingar vafrakaka

Nauðsynleg geymsla man valið þitt. Prófílmyndir og utanaðkomandi myndir falla undir virkni; myndbönd og samfélagsmiðlaefni undir markaðssetningu og innfellingar. Independent Analytics mælir heimsóknir á vefþjóninum án vafrakaka og er aðskilið frá þessum flokkum.