Hoppa í efni

Valtvennuvilla og hótun sjávarútvegsráðherra

Sigurður Hólm Gunnarsson | 19.06.2013

Sigurður Ingi Jóhannsson, sjávarútvegsráðherra, var furðu lostinn í fréttum Stöðvar 2 í kvöld yfir því hversu margir Íslendingar vilja ekki lækka veiðigjaldið. Viðbrögð ráðherrans voru merkileg vegna þess að í þeim fólst tvennt í senn. Hótun og valtvennuvilla (e. false dilemma – klassísk rökvilla sem oft er nýtt í hvers kyns áróðri).

Gefum sjávarútvegsráðherra orðið:

„„Eins og ég segi, menn verða að vita hverju þeir eru að hafna og hvað þeir eru að biðja um. Ef að menn falla frá þessu eins árs frumvarpi þá verður ekki hægt að leggja á veiðigjöld á næsta ári. Það er óframkvæmanlegt. Ég efast nú um að það sé tilgangur þeirra sem standa fyrir undirskriftasöfnuninni,“ sagði hann að lokum.“

Á mannamáli er Sigurður Ingi að segja að ef mótmælendum tekst að afstýra lækkun veiðigjalda verði engin veiðigjöld rukkuð. Gefur hann í skyn að sú niðurstaða yrði mótmælendum sjálfum að kenna.

Hótunin er augljós. Ef Íslendingar hætta ekki að mótmæla verður veiðigjaldið ekkert.

Valtvennuvillan felst í því að tefla fram tveim afarkostum þegar augljóst er að valkostirnir eru fleiri. Hægt er að fara eftir núgildandi lögum. Hægt er að breyta lögum í samræmi við vilja þess hluta þjóðarinnar sem vill að útgerðin borgi hærra veiðigjald. Það er jafnvel hægt að setja lög til að niðurgreiða enn frekar sjávarútveg í landinu. Hver trúir því að tillaga stjórnarflokkanna sé eini möguleikinn í stöðunni?

Viðbrögð ráðherrans einkennast af klassískum hræðsluáróðri. Það má ekki hækka skatt, þá hættir fólk að vinna. Það má ekki rukka auðlindagjöld þá fara öll fyrirtæki úr landinu. Það má ekki hækka laun þá fara öll fyrirtæki á hausinn. Það má ekki taka á móti örfáum flóttamönnum, þá fyllist landið af útlendingum. Það má ekki sækjum aðild að ESB, þá er fullveldið í húfi… ad infinitum.

Ekki láta hagsmunaaðila plata ykkur og skrifið undir hér:
http://www.petitions24.com/obreytt_veidigjald

Skoða 3 athugasemdirFela athugasemdir
  1. Einar Már Gunnarsson 19. júní 2013 · á Facebook

    Hann er bara að rugla í fólki, eða hversvegna eru sægreifar svona uppfullir af því,,, að fyrirtæki fari á hausinn ef gjaldið yrði rukkað. Ef ekki er hægt að rukka gjaldið,,, NÚ hversvegna þegja ekki LÍÚ og sægreifarnir.

  2. Andrés Björgvin Böðvarsson 19. júní 2013 · á Facebook

    Valtvennuvilla er ágætis orð yfir það sem stundum er nefnt fölsk valþröng, sem er beinni þýðing á false dilemma. Það er nógu pirrandi þegar henni er beitt og enn verra þegar fólk fellur fyrir henni. Skil reyndar ekki hvernig hugsandi fólk getur fallið fyrir þessari tilteknu valtvennuvillu, svo vitlaus er hún. En hugsandi fólk er e.t.v. ekki markhópurinn.

  3. Unnur B Reynisd 19. júní 2013 · á Facebook

    Hann minnir mig á óþekkan krakka sem einhver hefur skammað.

Skrifa athugasemd

Netfangið birtist ekki. Málefnaleg umræða er vel þegin.

Nafn, netfang og IP-tala eru vistuð með athugasemdinni. Sjá persónuvernd.

Skrifa athugasemd

Um höfundinn

Sigurður Hólm Gunnarsson

Stofnaði Skoðun árið 1999, þegar vefurinn var meðal fyrstu vefrita á Íslandi. Hér skrifar hann greinar og hugleiðingar um stjórnmál, hugmyndafræði, heimspeki og menningu, í anda frjálslyndis og umburðarlyndis.

Allar greinar höfundar (839) →

Fleiri greinar sem tengjast: Efnahagur og atvinnulíf

Stillingar vafrakaka

Nauðsynleg geymsla man valið þitt. Prófílmyndir og utanaðkomandi myndir falla undir virkni; myndbönd og samfélagsmiðlaefni undir markaðssetningu og innfellingar. Independent Analytics mælir heimsóknir á vefþjóninum án vafrakaka og er aðskilið frá þessum flokkum.