Hoppa í efni

Tólf eða þrettán milljarðar í Landspítalann?

Sigurður Hólm Gunnarsson | 30.09.2013

Vigdís Hauksdóttir á RÚVÁ morgun komumst við væntanlega að því hvort Landspítalinn vær tólf eða þrettán milljarða frá ríkisstjórninni, silfurskeiðabandalaginu svokallaða. Þessu fjármagni var lofað og ég er handviss um að stjórnmálaflokkar standi við gefin loforð. Hverjum myndi annars detta í hug að lofa þrettán milljörðum fyrir kosningar en svíkja það svo?

Vigdís Hauksdóttir,  sem er þingmaður Framsóknarflokksins og  situr jafnframt í hagræðingarhópi ríkisstjórnarinnar, sagði í kosningaþætti í apríl 2013 að Framsókn vildi þjóðarsátt um Landspítalann:

„Og þjóðarsáttin gengur út á það að það verða settir 12 til 13 milljarðar í rekstur Landspítalans.“ (Sjá upptöku)

Reyndar virðast ekki allir framsóknarmenn skilja orðin „verða settir“ og vilja meina að þessi orð fulltrúa flokksins, sem virtust lesin upp af blaði í kosningaþætti, þýði alls ekki að flokkurinn hafi verið að lofa neinu.

„Í fyrsta lagi er Vigdís ekki að lofa neinu. Í öðru lagi hafa fjárlög ekki verið lögð fram. Það stendur því lítið eftir í þessari „frétt“, annað en að höfundur hennar hefur mikinn áhuga á að koma höggi a Framsóknarflokkinn. Það fer lítið fyrir hlutlægri frettamennsku þessa dagana.“ Segir Karl Garðarsson, þingmaður Framsóknarflokksins á Facebook síðu sinni.

Kannski er þetta rétt hjá Karli. Það þarf auðvitað mikið hugmyndaflug og fáránlega trú á heiðarleika stjórnmálamanna að skilja þessi orð Vigdísar: „það verða settir 12 til 13 milljarðar í rekstur Landspítalans“ sem einhvers konar loforð.

Ég vona að of margir kjósendur hafi ekki haldið að stjórnmálamenn hafi virkilega verið að meina það sem þeir sögðu fyrir kosningar. Þá gæti fólk hafa kosið flokka á röngum forsendum.

Það væri vandræðalegt.

Skrifa athugasemdLoka

Skrifa athugasemd

Netfangið birtist ekki. Málefnaleg umræða er vel þegin.

Nafn, netfang og IP-tala eru vistuð með athugasemdinni. Sjá persónuvernd.

Um höfundinn

Sigurður Hólm Gunnarsson

Stofnaði Skoðun árið 1999, þegar vefurinn var meðal fyrstu vefrita á Íslandi. Hér skrifar hann greinar og hugleiðingar um stjórnmál, hugmyndafræði, heimspeki og menningu, í anda frjálslyndis og umburðarlyndis.

Allar greinar höfundar (839) →

Fleiri greinar sem tengjast: Heilsa og velferð

Stillingar vafrakaka

Nauðsynleg geymsla man valið þitt. Prófílmyndir og utanaðkomandi myndir falla undir virkni; myndbönd og samfélagsmiðlaefni undir markaðssetningu og innfellingar. Independent Analytics mælir heimsóknir á vefþjóninum án vafrakaka og er aðskilið frá þessum flokkum.