Hoppa í efni

Tillaga að kjarabót fyrir kennara og aðra opinbera starfsmenn

Sigurður Hólm Gunnarsson | 17.03.2014

Opinberar stofnanir greiði námslán starfsmanna sem eru í störfum sem „krefjast“ háskólamenntunar. Miðað skal við hefðbundin námslán hjá fólki sem hefur ekki haft tök á því að vinna með skóla eða lifa á fjölskyldu sinni meðan það er í námi. Þessi greiðsla bætist ofan á laun og reiknast sem bónus til handa opinberum starfsmönnum (sem yfirleitt eru með lægri laun en starfsmenn í einkageiranum).

Skuldi viðkomandi starfsmaður ekki námslán fær hann samsvarandi upphæð greidda í peningum eða sem aukaframlag í viðbótarlífeyrissjóð.

Það getur varla talist sanngjarnt að „kaupaukinn“ sem fólk fær fyrir háskólagráðurnar sínar hjá hinu opinbera dugi vart fyrir mánaðarlegum afborgunum námslána.

Skrifa athugasemdLoka

Skrifa athugasemd

Netfangið birtist ekki. Málefnaleg umræða er vel þegin.

Nafn, netfang og IP-tala eru vistuð með athugasemdinni. Sjá persónuvernd.

Um höfundinn

Sigurður Hólm Gunnarsson

Sigurður Hólm Gunnarsson er stofnandi og ritstjóri Skoðunar frá 1999. Hann er iðjuþjálfi, ráðgjafi og sáttamiðlari og rekur Allir sáttir. Hann hefur víðtæka reynslu af stjórnun og starfi með ungmennum og fjölskyldum. Sigurður rekur einnig Proxima og hefur áralanga reynslu af vefhönnun, vefumsýslu og upplýsingatækni, með sérþekkingu á WordPress og diplómapróf í vefmiðlun frá Háskóla Íslands. Á Skoðun skrifar hann um samfélagsmál, samskipti, hugmyndafræði og menningu.

Allar greinar höfundar (858) →

Fleiri greinar sem tengjast: Börn og menntun

Stillingar vafrakaka

Nauðsynleg geymsla man valið þitt. Prófílmyndir og utanaðkomandi myndir falla undir virkni; myndbönd og samfélagsmiðlaefni undir markaðssetningu og innfellingar. Independent Analytics mælir heimsóknir á vefþjóninum án vafrakaka og er aðskilið frá þessum flokkum.