Hoppa í efni

Svíar aðskilja ríki og kirkju

Sigurður Hólm Gunnarsson | 30.12.1999

Formlegur aðskilnaður ríkis og kirkju mun eiga sér stað í Svíþjóð nú í upphafi næsta árs. Þetta eru góðar fréttir fyrir þá sem aðhyllast trúfrelsi en eru andvígir óþarfa og óheppilegum ríkisafskiptum. Aðskilnaður ríkis og kirkju hér á landi er ekki spurning um hvort heldur hvenær. Það er ef Íslendingar vilja vera í hópi siðmenntaðra þjóða.

Allt of margir falla í þá gryfju að gera ráð fyrir mjög einsleitu samfélagi á Íslandi og telja því eðlilegt að hér sé starfrækt þjóðkirkja á kostnað skattgreiðenda. Fyrir rétt rúmu ári voru 89,4% Íslendinga skráð í þjóðkirkjuna sem er svipað hlutfall og er í Svíþjóð en 90% Svía eru skráðir í sænsku þjóðkirkjuna. Hér, rétt eins og í Svíþjóð, er meirihluti landsmanna* hlynntur aðskilnaði ríkis og kirkju þannig að það er greinilega margt líkt með aðstæðum hér og í Svíþjóð.

Það er einlæg von mín að aðskilnaður ríkis og kirkju í Svíþjóð flýti fyrir sams konar aðskilnaði hér á landi.

*Um 63% Íslendinga eru hlynntir aðskilnaði ríkis og kirkju samkvæmt könnun sem framkvæmd var í september árið 1998.

Skrifa athugasemdLoka

Skrifa athugasemd

Netfangið birtist ekki. Málefnaleg umræða er vel þegin.

Nafn, netfang og IP-tala eru vistuð með athugasemdinni. Sjá persónuvernd.

Um höfundinn

Sigurður Hólm Gunnarsson

Stofnaði Skoðun árið 1999, þegar vefurinn var meðal fyrstu vefrita á Íslandi. Hér skrifar hann greinar og hugleiðingar um stjórnmál, hugmyndafræði, heimspeki og menningu, í anda frjálslyndis og umburðarlyndis.

Allar greinar höfundar (839) →

Fleiri greinar sem tengjast: Efnahagur og atvinnulíf

Stillingar vafrakaka

Nauðsynleg geymsla man valið þitt. Prófílmyndir og utanaðkomandi myndir falla undir virkni; myndbönd og samfélagsmiðlaefni undir markaðssetningu og innfellingar. Independent Analytics mælir heimsóknir á vefþjóninum án vafrakaka og er aðskilið frá þessum flokkum.